GRUNNSKÓLAR ÍSAFJARÐARBÆJAR

New Paragraph

Fréttir & tilkynningar

Hvað er nú að frétta í skólunum?

Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 29. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar • 25. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 22. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Þingeyri • 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar • 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 2. september 2026

Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 20. ágúst 2026
Skólasetning
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar • 20. ágúst 2026
Skólasetning Grunnskóla Önundarfjarðar verður mánudaginn 24. ágúst klukkan 10:00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst. Hlökkum til að taka á móti ykkur.
Eftir Grunnskólinn á Þingeyri • 2. júlí 2026
Grunnskólanum á Þingeyri var slitið í 129. skiptið 5. júní sl.
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 10. júní 2026
Nú er sumarið framundan og viljum við hvetja alla, stóra sem smáa, til að njóta sumarlesturs. Bókasafnið á Ísafirði býður upp á lestrarsprett til 20. ágúst fyrir yngri börnin og fer skráning fram á safninu. Skólinn stendur fyrir spurningakeppni 5.-7. bekkjar í haust, þar sem nemendur þurfa að lesa ákveðnar bækur sem verða til umfjöllunar. Nú er lag fyrir þá nemendur að nýta sumarið til lesturs þessara bóka og má sjá bókalistann á meðfylgjandi mynd. Við vonum svo sannarlega að allir verði duglegir að lesa í sumar og njóti lestursins, því eins og við vitum þá er alltaf veður til að lesa. Gleðilegt lestrarsumar!

Grunnskólanum á Ísafirði var slitið í 151. skipti föstudaginn 5. júní síðastliðinn og fór athöfnin fram í Ísafjarðarkirkju. Jón Hálfdán Pétursson, deildarstjóri unglingastigs setti athöfnina, en að því loknu tóku kynnar við, þau Emilía Rós Sindradóttir og Garðar Logi Guðmundsson, nemendur í 9.bekk. Guðbjörg Halla Magnadóttir skólastjóri, flutti ávarp og það gerðu einnig þau Saga Björgvinsdóttir og Hilmir Norðfjörð fyrir hönd útskriftarnema. Nemendur buðu upp á tónlistaratriði þar sem Kristín Eik Sveinbjörnsdóttir lék Sonatinu í G-dúr eftir Ludwig van Beethoven. Eftirtaldar viðurkenningar voru veittar í 8. og 9. bekk: 8. bekkur - Ylfa K. Rósinkara Tómasdóttir hlaut viðurkenningu Rotary klúbbsins á Ísafirði fyrir ástundun og framfarir. 9. bekkur - Dagbjört Sjöfn Magnúsdóttir hlaut viðurkenningu Rotary klúbbsins á Ísafirði fyrir ástundun og framfarir. Eftirtaldar viðurkenningar voru veittar í 10. bekk: Rotary klúbburinn á Ísafirði veitti viðurkenningu fyrir ástundun og framfarir í 10. bekk og hana hlaut Sölvey Marie Tómasdóttir. Kvenfélagið Hvöt gaf eftirfarandi viðurkenningar fyrir verk- og listgreinar: Viðurkenningu fyrir framfarir og vinnubrögð í í smíði og hönnun hlaut Sigríður Jóna Haraldsdóttir. Viðurkenningu fyrir listræna hæfileika, jákvæðni og áhugasemi í myndmennt hlaut Roza Matijevic Ismailovski. Viðurkenningu fyrir brennandi áhuga, kraft og dugnað í heimilisfræði hlaut Heimir Logi Samúelsson. Stöðin Heilsurækt gaf viðurkenningar fyrir góða ástundun og námsárangur í íþróttum. Þær viðurkenningar hlutu Hilmir Norðfjörð og Saga Björgvinsdóttir. Danska Menntamálaráðuneytið gaf viðurkenningu fyrir góða ástundun, vinnusemi, góð skil og framfarir í dönsku og hlaut Saga Björgvinsdóttir þau verðlaun. Grunnskólinn á Ísafirði veitti eftirfarandi viðurkenningar: Viðurkenningu fyrir metnað, góða ástundun og námsárangur í stærðfræði hlaut Saga Björgvinsdóttir. Viðurkenningu fyrir góða ástundun og námsárangur í náttúrufræði hlaut Saga Björgvinsdóttir. Viðurkenningu fyrir góða ástundun og námsárangur í samfélagsfræði hlaut Þórey Þórsdóttir. Viðurkenningu fyrir góða ástundun og námsárangur í ensku hlaut Guðmundur Arnór Shiransson. Viðurkenningu fyrir frumkvæði, ábyrgð og áreiðanleika í tækniráði hlutu þeir Jakob Ingi Ingvarsson og Ólafur Pálmi Birgisson. Dokkupúkinn veitti verðlaun í íslensku til minningar um Ölmu Guðrúnu Frímannsdóttur, fyrrverandi kennara G.Í. Þau verðlaun hlaut Kristín Eik Sveinbjörnsdóttir fyrir metnað, góða ástundun og námsárangur. Starfsfólk Grunnskólans á Ísafirði þakkar árgangi 2010 samfylgdina í gegnum árin og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.
Eftir Grunnskólinn á Suðureyri • 21. maí 2026
Vorferð
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar • 1. maí 2026
Þemað þessar vikurnar er hafið.
30. apríl 2026
Frá árinu 2013 höfum við haldið nemendaþing annað hvert skólaár. Markmið þessara umræðuþinga eru fjögur; - að veita nemendum tækifæri til að taka þátt í lýðræðislegri samræðu um málefni sem hefur merkingu fyrir daglegt líf þeirra og skipulag skólastarfsins - að efla vitund nemenda um eigin áhrif í skólastarfinu - að fá fram rödd og sjónarhorn nemenda í ýmsum málaflokkum - að fá fram tillögur frá nemendum um hvað hægt er að gera til að hafa jákvæð áhrif á deglegt starf í skólanum. Þingin hafa verið sett upp með formlegu sniði, þar sem borðstjórar hafa komið úr efri bekkjum og fengið sérstaka þjálfun í að virkja samnemendur til þátttöku og að stýra umræðum þannig að allir fái að tjá sig. Viðfangsefnin hafa verið þessi: skólasamfélagið, kynjajafnrétti, samfélagsmiðlar, samskipti, símanotkun, einelti, og hvernig gerum við góðan skóla betri. Sjöunda nemendaþing skólans var haldið 27.janúar 2026 og var viðfangsefnið líðan og hegðun. Í fyrsta skipti í sögu nemendaþinganna tók allur skólinn þátt frá 1.bekk og upp úr, en hingað til hefur yngsta stigið ekki verið með. Það reyndi því enn frekar á unglingana okkar að stýra þeim yngstu og fá fram svörun frá öllum. Nemendum skólans var skipt í 14 hópa á hverju stigi, eða samtals 42 hópa og komu hópstjórar úr 7. - 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru virðing, samhugur og menntun og var það kjarninn í umræðunum. Hópstjórar hófu starfið með því að lesa úr barnasáttmálanum um réttindi barna, þar sem segir að börn eigi rétt á því að tjá sig frjálslega um öll málefni sem hafa áhrif á líf þeirra og að fullorðnir eigi að hlusta og taka mark á þeim. Í framhaldinu voru lagðar fyrir 6 spurningar: 1. Virðing - hvernig sjáum við hana, heyrum hana og finnum hana? 2. Samhugur - hvernig sjáum við hann, heyrum hann og finnum hann? 3. Góð líðan - hvernig sjáum við hana, heyrum hana og finnum hana? 4. Hvað getur þú gert til að þér líði betur? 5. Hvað getur starfsfólk skólans gert til að þér líði betur? 6. Hvað getur þú gert til að öðrum líði betur? Nemendur tjáðu sig allir á post-it miða, sem voru settir við hverja spurningu. Nemendaráð fékk svo það hlutverk að taka saman niðurstöður allra 42 hópanna. Nú í vikunni fór nemendaráð svo inn í alla bekki og kynnti niðurstöðurnar, sem voru svo hengdar upp á öllum göngum skólans. Kennarar munu svo nýta þær enn frekar til umræðna og ígrundunar inni í bekkjum. Niðurstöðurnar eru skýrar hjá nemendum og má sjá kjarnann í þeim innrammaðan á hverju spjaldi. Vinnan sem fram fór í hópunum er einnig ómetanleg, þar sem allir nemendur höfðu rödd, sem hefur svo jákvæð áhrif á skólastarfið. 
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar • 12. desember 2025
Jólasýning í Safnahúsinu
Eftir Helga Snorradóttir • 2. október 2025
Bleikur október er runninn upp, þar sem landsmenn eru hvattir til að lýsa upp skammdegið í bleikum ljóma, svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning og samstöðu. Bleiki dagurinn verður miðvikudaginn 22.október, en þar sem hann ber upp á starfsdag hjá okkur þetta árið, þá hvetjum við nemendur og starfsfólk til að klæðast einhverju bleiku föstudaginn 24.október. Skólasafnið okkar er komið í októberfötin og býður upp á úrval bleikra bóka. 
Eftir Vilborg Ása Bjarnadóttir • 8. apríl 2025
This is a subtitle for your new post
Eftir Jóna Lára Sveinbjörnsdóttir • 1. apríl 2025
skák
25. mars 2025
Árshátíð GÍ 2025
28. febrúar 2025
Árshátíð
Eftir Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 15. janúar 2025
Það hefur lengi staðið til að skólinn eignist sitt merki og nú er komið að því. Ágúst Atlason, margmiðlunarhönnuður og ljósmyndari, hannaði merkið og erum við ánægð með útkomuna.
Eftir Jóna Lára Sveinbjörnsdóttir • 15. janúar 2025
Í Grunnskóla Önundarfjarðar hefur nú hafist spennandi lestrarátak sem stendur yfir næstu fimm vikurnar. Markmið átaksins er að efla lestrarfærni og lestrargleði á sama tíma.
Eftir Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 13. janúar 2025
Mikið fjör var í skólanum í dag - nemendur komu með morgunverðakassa í skólann og úr varð Domino. Tæplega 300 kassar fengu að falla á göngum skólans og allir voru sammála um að þetta þyrfti að endurtaka. Það voru tveir drengir í 4. bekk, þeir Kári og Birkir Snær, sem komu að máli við Höllu skólastjóra og sögðust hafa séð svo skemmtilegt myndband á netinu og spurðu hvort þetta væri hægt í skólanum okkar.
Eftir Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 9. janúar 2025
Nemendur í 5. bekk voru í stöðvavinnu í morgun. Þau voru að vinna á hreyfistöð, í stærðfræðispili, fóru í margföldunarleiki á Ipad og ýmislegt fleira.
Eftir Vilborg Ása Bjarnadóttir • 8. janúar 2025
Í dag fékk Grunnskólinn að gjöf hjartastuðtæki frá Oddfellowstúkunum á Ísafirðir. Það voru hjónin Ingólfur Þorleifsson og Guðrún Oddný Schmidt sem afhentu skólastjóra tækið fyrir hönd Oddfellows. Við þökkum kærlega fyrir.
Eftir Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 7. janúar 2025
Krakkarnir í GÍ taka jólabókahefð Íslendinga alvarlega og voru dugleg að lesa í desember. Þau sem vildu tóku þátt í örlitlum jólaleik, sem fólst í því að fyrir hverja lesna bók var nafn bókarinnar skrifað á jólakúlu og hún var svo hengd á jólatréð í glugga bókasafnsins. Yngri krakkarnir voru ötulli en þau eldri við skreytingarnar og ekki vildu allir skreyta en samtals fóru 160 kúlur, stjörnur og hjörtu á tréð. Það gera að minnsta kosti 160 lesnar bækur í desember. Krakkarnir höfðu gaman af þessu uppátæki og voru stolt af skreytingunum sínum. Ef þú lesandi góður hefur ekki ennþá frétt af þessu uppátæki þá hvetjum við þig til að spyrja börnin í nágrenni þínu hvort þau hafi tekið þátt og hvaða bækur þau lásu.
Eftir Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 4. janúar 2025
No content
Eftir Jóna Lára Sveinbjörnsdóttir • 19. desember 2024
Sæl öll
Eftir Vilborg Ása Bjarnadóttir • 19. desember 2024
Desember hefur liðið hratt enda búið að vera nóg að gera. Nemendur hafa verið að gera jólakort og jólaskraut.
Eftir Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 18. desember 2024
Nú er lítið eftir af þessu ári og styttist í jólafrí. Í dag var síðasti valgreinadagur á unglingastigi.
Eftir Erna Höskuldsdóttir • 17. desember 2024
19. desember verða „Litlu jólin“ kl. 10-12:10
Eftir Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 16. desember 2024
Nemendur hafa verið önnum kafnir undanfarið að skreyta skólann og má segja að það finnist varla hurð í skólanum sem ekki er skreytt.
Eftir Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 15. desember 2024
No content
Eftir Erna Höskuldsdóttir • 13. desember 2024
Í dag var rauðurdagur í G.Þ. Þá komu nemendur og starfsfólk í einhverju rauðu til að búa til skemmtilega rauða stemmningu.
Eftir Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 10. desember 2024
Nemendur fjórða bekkjar eru í allskonar verkefnum í hringekju. Þau eru að búa til rúm í tæknimennt og svo sængurföt fyrir rúmið í textílmennt. Jólin eru allsráðandi í myndmennt og svo eru verið að baka hafrabrauð í heimilisfræði.
Eftir Vilborg Ása Bjarnadóttir • 6. desember 2024
Það er ýmislegt um að vera hjá okkur á aðventunni eins og alltaf. Á mánudag fengu nemendur á miðstigi að læra að gera sushi. Við fengum hana Kötlu Vigdísi til þess að kenna okkur það. Gekk það ljómandi vel hjá öllum og bragðaðist vel líka.
Eftir Jóna Lára Sveinbjörnsdóttir • 4. desember 2024
Kaffihúsakvöld grunnskólans verður á morgun fimmtudaginn 5. desember klukkan 17:00. Nemendurnir eru búnir að undirbúa dagskrá fyrir kvöldið og ætlum við að fá hjálp frá ykkur við að búa til jólasveina sem við ætlum að hengja upp í skólanum. Nemendurnir hafa allir valið sér einn jólasvein sem þau gerðu skissu af og vonumst við til að geta klárað allavegana nokkra af þeim á morgun. Einnig verðum við með skákborðin tilbúin og væri gaman að geta tekið nokkrar skákir.
Eftir Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 2. desember 2024
Það er fátt jólalegra en bækur og huggulegheit. Þetta vita þær á bókasafninu og þess vegna hafa þær útbúið kósýhorn þar sem börnin geta hjúfrað sig með bók núna í desember. Hjá kósýhorninu er jólabókadagatal þar sem úrval bóka er að finna við hvern skóladag í mánuðinum. Öll börn sem lesa bók og jafnvel starfsfólk líka, getur svo fengið jólakúlu, skrifað nafnið sitt og bókarinnar á hana og hengt upp á jólatré sem er teiknað á gluggann. Þegar líður á mánuðinn fyllist jafnt og þétt á tréð og það er jafnvel hægt að sjá glitta í það utan frá götunni. Vonandi fyllist tréð í desember og verður fallega skreytt fyrir hátíðarnar.

Eftir Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 29. nóvember 2024
Ég veit! spurningakeppni miðstigs var í dag. Undanfarna mánuði hafa krakkarnir á miðstigi verið undirbúa sig fyrir spurningakeppnina með því að lesa 8 valdar skáldsögur. Valdir voru þrír fulltrúar úr hverjum bekk í keppnislið en samt sem áður þurftu allir að undirbúa sig vel því oft getur keppnisliðið fengið hjálp frá bekknum sínum til að svara spurningunum.
Eftir Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 28. nóvember 2024
Það var mikið líf og fjör hjá nemendum 6. bekkjar á þriðjudag, en þá buðu þeir foreldrum sínum á listasýningu í skólanum. Á sýningunni mátti sjá myndlist af ýmsum toga, skúlptúra, nokkrar gerðir verka sem unnin voru úr textíl og allskonar smíðagripi svo sem lampa.
Eftir Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 25. nóvember 2024
Á bókasafninu eru oft skemmtilegir lestrarleikir sem nemendur geta tekið þátt í. Nóvemberleikurinn snérist um 10. bekk en í byrjun mánaðarins voru nemendur bekkjarins beðnir um að finna uppáhaldsbækurnar sínar á bókasafninu. Bókunum var síðan stillt upp til sýnis og unglingarnir hvattir til að taka þátt í leiknum. Leikurinn snýst um það að lesa tvær bækur af þessum 33 sem valdar voru, eða velja sér aðrar þyngri. Í lok nóvember kemur í ljós hversu mörg tóku þátt og eru 10 verðlaun í boði fyrir þau sem klára leikinn.
Eftir Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 22. nóvember 2024
Í dag heimsótti Karl Inuk nemendur í dönskutíma hjá 8., 9. og 10. bekk og kynnti landið sitt, Grænland. Hann ræddi við þau um hvernig það er að alast upp á Grænlandi og sagði frá menningu og hefðum landsins. Nemendur áttuðu sig á því að Grænland er kannski ekki svo ólíkt Íslandi.
Eftir Erna Höskuldsdóttir • 19. nóvember 2024
Árshátíð G.Þ. verður föstudaginn 5. apríl. Nemendur hafa undanfarnar vikur verið að æfa leikritið um hafmeyjuna Ariel og vini hennar. Ariel verður ástfangin af manni og er tilbúin til að fórna röddinni til að fá fætur fyrir sporð.

Árshátíð G.Þ. verður fimmtudaginn 21. nóvember. Nemendur á elsta stigi og miðstigi hafa undanfarnar vikur verið að semja æfa leikrit þar sem persónur úr ævintýrum fjalla um mikilvægi vináttu og læra af mistökum. Nemendur á yngsta stigi ætla að syngja og leika Minkinn í hænsnakofanum.
Eftir Jóna Lára Sveinbjörnsdóttir • 15. nóvember 2024
Eins og flestir vita var vatnsleysi á Flateyri í vikunni og skólinn auðvitað engin undantekning þar á. Vatnsleysið gaf okkur m.a. tækifæri til að ræða mikilvægi vatns og hversu háð við erum því í daglegu lífi. Sérstaklega var rætt um vatnsnotkun tengda klósettferðum og hversu ómissandi hreint vatn er í því samhengi. Nemendur tóku þessu vatnsleysi með miklu jafnaðargeði en hugsanlega hafa þau aldrei verið jafn þyrst og þar sem skólastjórinn býr á Ísafirði fengu þau hreint og ferskt ísfirskt vatn að drekka. Sumir töldu sig finna bragðmun sem við munum rannsaka við tækifæri þegar að vatnið á Flateyri er komið í lag.
Eftir Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 14. nóvember 2024
Stóra upplestrarkeppnin er árleg keppni í upplestri sem haldin er fyrir nemendur í 7. bekk. Markmið keppninnar er að efla lesskilning og lesskilningi ásamt því að auka áhuga á bókmenntum og menningu. Nemendur taka þátt í keppninni með því að lesa upphátt úr ýmsum textum, oft bæði ljóðum og sögum, og er lögð áhersla á að flytja textann á skýran og skilmerkilegan hátt.
Sjá fleiri