GÍ - Ólympíuhlaup ÍSÍ

Grunnskólinn á Ísafirði • 22. september 2026

This is a subtitle for your new post

Á morgun mun hið árlega skólahlaup fara fram. Hlaupið verður af stað kl. 10.00 og verður Seljalandsvegurinn lokaður til kl. 11.00.


Ólympíuhlaup ÍSÍ, sem áður hét Norræna skólahlaupið, hefur verið fastur liður í skólastarfi fjölmargra grunnskóla frá árinu 1984 þegar hlaupið var haldið í fyrsta sinn. Þessi viðburður er tengdur Íþróttaviku Evrópu / BeActive.

Markmið Ólympíuhlaups ÍSÍ er að hvetja nemendur til reglulegrar hreyfingar og stuðla þannig að betri heilsu, vellíðan og jákvæðum lífsvenjum. Áður gátu nemendur valið á milli 2,5 km, 5 km og 10 km vegalengda, en nú hafa skólar aukið svigrúm til að ákveða vegalengdir sjálfir með hliðsjón af aðstæðum og umhverfi hvers skóla.

Að hlaupi loknu fær hver skóli viðurkenningarskjal þar sem fram kemur fjöldi þátttakenda og samanlögð vegalengd sem hlaupin var. Áherslan er fyrst og fremst á holla hreyfingu, þátttöku allra og að nemendur njóti þess að taka þátt.

Grunnskólar um allt land geta staðið fyrir Ólympíuhlaupi ÍSÍ fram til áramóta og skráð þátttakendur í gegnum skráningarformið hér að neðan. Allir skólar sem skrá þátttöku fyrir 9. október fara í pott þar sem dregið verður um 150.000 króna gjafabréf frá Altis


Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 29. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar • 25. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Þingeyri • 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar • 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 20. ágúst 2026
Skólasetning
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar • 20. ágúst 2026
Skólasetning Grunnskóla Önundarfjarðar verður mánudaginn 24. ágúst klukkan 10:00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst. Hlökkum til að taka á móti ykkur.
Show More