This is a subtitle for your new post

Nemendur í 7. bekk eru þessa dagana að vinna að skemmtilegu verkefni sem nefnist Pennavinir, í samstarfi við nemendur í 7. bekk í Hlíðaskóla.
Í verkefninu skrifa nemendur bréf til pennavina sinna þar sem þeir kynna sig, segja frá áhugamálum sínum og daglegu lífi og spyrja spurninga til að kynnast nýjum vinum.
Markmið verkefnisins er að efla ritun, tjáningu og samskiptafærni nemenda á skemmtilegan og skapandi hátt.
Við hlökkum til að sjá hvernig pennavinasamskiptin þróast og vonum að verkefnið verði upphafið að góðum kynnum milli skólanna!










