This is a subtitle for your new post

Skóladagatöl grunnskóla Ísafjarðarbæjar fyrir skólaárið 2026 - 2027 eru nú aðgengileg á stafrænu formi.
Foreldrar og forráðamenn geta sótt skóladagatal viðkomandi skóla sem ICS-skrá og bætt því við eigið dagatal í síma eða tölvu, s.s. Google Calendar, Outlook eða Apple Calendar.
Þannig er einfalt að hafa yfirsýn yfir mikilvæga daga skólaársins eins og t.d. starfsdaga, vetrarfrí, viðtalsdaga og aðra viðburði.
Skóladagatölin ásamt ítarlegum leiðbeiningum eru undir flipanum Skóladagatal hjá viðkomandi skóla.
Einnig viljum við vekja athygli á því að við hvern viðburð er flipi merktur Bæta í dagatal. Ef þið smellið á hann er hægt að bæta einstaka viðburði við sitt persónulega dagatal.
Athugið: Ef breytingar verða á skóladagatalinu eftir að ICS-skráin hefur verið sótt uppfærast þær ekki sjálfkrafa í dagatalinu. Þá þarf að sækja uppfærða útgáfu.










