Starfsfólk

Matseðill

Farsæld barna

Mentor

Heim

Skóladagatal

Grunnskóli Önundarfjarðar

Gleði · Ábyrgð · Virðing · Metnaður

Grunnskóli Önundarfjarðar
Gleði · Ábyrgð · Virðing · Metnaður

Þjónusta

Þjónusta

  • Námsráðgjöf

    Námsráðgjafi skólans er Hildur Vilhjálmsdóttir


    Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er meðal annars að:


    • leiðbeina nemendum um góð vinnubrögð og námsvenjur
    • veita nemendum ráðgjöf í einkamálum
    • aðstoða nemendur við að gera sér grein fyrir áhugasviðum sínum og setja sér markmið
    • vera stuðningsmaður nemenda vegna erfiðleika eða áfalla,
    • aðstoða nýja nemendur við aðlögun
    • sinna fyrirbyggjandi starfi með fræðslu og ráðgjöf
    • vinna með kennurum og öðru starfsfólki að bættum samskiptum í skólanum og gegn einelti
    • vera meðlimur í nemendaverndarráði
    • halda utan um vinnslu eineltismála innan skólans

    Hægt er að afla sér nánari upplýsinga um hlutverk náms- og starfsráðgjafa á heimasíðu félagsins.

    Félag náms- og starfsráðgjafa
  • Skólahjúkrun

    Skólahjúkrunarfræðingar skólans eru:

    Helena Hrund Jónsdóttir og Henný Þrastardóttir 


    sími 450-8300


    netfang: skolahjukrun@hvest.is

  • Nemendaverndarráð

    Nemendaverndarráð skólans er skipað samkvæmt heimildarákvæði í grunnskólalögum. Nemendaverndarráð starfar í samræmi við það sem segir í 39. gr. laga um grunnskóla, nr.66/1995: "Í grunnskóla er heimilt að stofna nemendaverndarráð til að samræma störf þeirra sem sjá um málefni einstakra nemenda varðandi námsráðgjöf, sérfræðiþjónustu og heilsugæslu."


    Hlutverk ráðsins er að fylgjast sérstaklega með nemendum sem af einhverjum ástæðum líður illa eða eiga í einhverjum erfiðleikum í skólanum. Nemendarverndarráð tekur sameiginlegar ákvarðanir um málefni einstakra nemenda eða nemendahópa. Því er einnig ætlað að fjalla um skipulag og framkvæmd skólastarfsins og að vera ráðgefandi fyrir skólastjóra um hvernig best skuli stuðla að jákvæðu námsumhverfi og alhliða velferð nemenda.


    Í nemendaverndarráði sitja skólastjóri, aðstoðarskólastjóri, deildarstjórar, skólahjúkrunarfræðingur, námsráðgjafi og fulltrúar Skóla- og tómstundasviðs og barnaverndar.

  • Dægradvöl

    Boðið er upp á dægradvöl frá lokum skóladags til klukkan 16:00 mánudaga til föstudaga. Dægradvöl er í boði fyrir 1.-4. bekk og fer starfið að mestu fram í húsnæði grunnskólans. 


    Stefna skólans er:


    að tryggja börnum í 1. - 4. bekk áhugaverða, skemmtilega og örugga dvöl að lokinni hefðbundinni kennslu.


    Skólastjóri er yfirmaður dægradvalar og er sótt um hjá honum. 

  • Mötuneyti

    Allur matur fyrir grunnskólann er gjaldfrjáls og er matreiddur í Gunnukaffi. Nemendur fara gangandi í

    mat ásamt einum til tveimur starfsmönnum eftir þörfum, sem fylgja þeim, aðstoða og borða með þeim.

    Þessi göngutúr er um kílómeter fram og til baka og því góð dagleg hreyfing. 


    Boðið er (gjaldfrjálst) upp á hafragraut í skólanum í nestispásunni klukkan 09:20. Mælst er til að foreldrar hugi að hollustu þess nestis

    sem nemendur hafa meðferðis í skólann. 



  • Áætlun strætisvagna

    Strætisvagnar Ísafjarðarbæjar tengja saman byggðarkjarna og nýtast íbúum til að komast í og úr skóla og vinnu. Áætlunin er fyrst og fremst sniðin eftir því en einnig til að íbúar geti nýtt sér þjónustu sem einungis er í boði á Ísafirði.

    Áætlun strætisvagna

Heim

Matseðill

Skóladagatal


Myndataka er óheimil í skólanum nema með sérstöku leyfi. Síminn á aldrei að trufla kennslustund og á að vera geymdur í skáp nemenda eða heima.

Símareglur


Markmið starfsmanna-stefnunnar er að sjá til þess að skólinn sé aðlaðandi vinnustaður þar sem þróast fagþekking, verkkunnátta og mikill vilji til þess að þjónusta nemendur og foreldra.

Starfsfólk