Heim

Starfsfólk

Matseðill

Farsæld barna

Mentor

Skóladagatal

Grunnskólinn á Ísafirði

Virðing · Samhugur · Menntun

Grunnskólinn á Ísafirði

Virðing · Samhugur · Menntun

Þjónusta

  • Námsráðgjöf

    Námsráðgjafi skólans er Inga Bára Þórðardóttir. Viðvera hennar frá kl. 8:00-12:00 mánudaga til fimmtudaga.

    Netfang hjá Ingu Báru er ingabara@isafjordur.is


    Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er meðal annars að:


    Leiðbeina nemendum um góð vinnubrögð og námsvenjur.

    Veita nemendum ráðgjöf í einkamálum.

    Aðstoða nemendur við að gera sér grein fyrir áhugasviðum sínum og setja sér markmið.

    Vera stuðningsmaður nemenda vegna erfiðleika eða áfalla.

    Aðstoða nýja nemendur við aðlögun.

    Sinna fyrirbyggjandi starfi með fræðslu og ráðgjöf.

    Vinna með kennurum og öðru starfsfólki að bættum samskiptum í skólanum og gegn einelti.

    Vera meðlimur í nemendaverndarráði.

    Halda utan um vinnslu eineltismála innan skólans.

  • Skólahjúkrun

    Heilsuvernd skólabarna er á vegum Heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða. Skólahjúkrunarfræðingar eru Anna María Guðjónsdóttir og Kristín Úlfarsdóttir.


    Viðvera: 


    Þriðjudagar frá kl 8:00 – 12:00

    Miðvikudagar frá kl 8:00 – 12:00

    Fimmtudagar frá kl 8:00 – 12:00


    Netfang: skolahjukrun@hvest.is

    Sími: 450 8300


    Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og framhald af ung- og smábarnavernd. Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni samvinnu við forsjáraðila, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi. Farið er með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar.


    Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru forvarnir, heilbrigðisfræðsla, skimanir og bólusetningar. Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu um heilsuvernd grunnskólabarna. Frekari upplýsingar um heilsuvernd skólabarna má finna á heilsuvera.is undir leitarorði „heilsuvernd grunnskólabarna“ 


    Veikindi og slys. Ef óhapp eða slys verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæsluna eða slysadeild skulu forsjáraðilar fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í þá á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af heilsuvernd skólabarna. 


    Langveik börn. Mikilvægt er að hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd skólabarna viti af börnum sem eru með fötlun eða langvinnan og/eða alvarlegan sjúkdóm, s.s. sykursýki, ofnæmi, flogaveiki, blæðingarsjúkdóma eða aðra alvarlega sjúkdóma. Hlutverk hjúkrunarfræðingsins í heilsuvernd skólabarna er að skapa þessum börnum viðeigandi aðstæður og umönnun í skólanum í samvinnu við foreldra/forsjáraðila og starfsfólk skólans. 


    Lyfjagjafir. Samkvæmt tilmælum landlæknis um lyfjagjafir í grunnskólum eru sérstakar vinnureglur varðandi lyfjagjafir til nemenda á skólatíma. Mikilvægt er að forsjáraðilar barna sem þurfa að taka lyf á skólatíma hafi samband við hjúkrunarfræðing í skólanum.


  • Nemendaverndarráð

    Nemendaverndarráð skólans er skipað samkvæmt heimildarákvæði í grunnskólalögum. Nemendaverndarráð starfar í samræmi við það sem segir í 39. gr. laga um grunnskóla, nr.66/1995: "Í grunnskóla er heimilt að stofna nemendaverndarráð til að samræma störf þeirra sem sjá um málefni einstakra nemenda varðandi námsráðgjöf, sérfræðiþjónustu og heilsugæslu."


    Hlutverk ráðsins er að fylgjast sérstaklega með nemendum sem af einhverjum ástæðum líður illa eða eiga í einhverjum erfiðleikum í skólanum. Nemendarverndarráð tekur sameiginlegar ákvarðanir um málefni einstakra nemenda eða nemendahópa. Því er einnig ætlað að fjalla um skipulag og framkvæmd skólastarfsins og að vera ráðgefandi fyrir skólastjóra um hvernig best skuli stuðla að jákvæðu námsumhverfi og alhliða velferð nemenda.


    Í nemendaverndarráði sitja skólastjóri, aðstoðarskólastjóri, deildarstjórar, skólahjúkrunarfræðingur, námsráðgjafi og fulltrúar Skóla- og tómstundasviðs og barnaverndar.

  • Eineltisvarnarteymi


  • Dægradvöl

    Yngstu nemendum Grunnskólans á Ísafirði býðst að fara í dægradvöl eftir að skóla lýkur á daginn þar til klukkan fjögur. Starfsfólk aðstoðar börnin við að fara á réttum tíma í skipulagðar tómstundir eða skapa þeim rými fyrir frjálsan leik.


    Skráning í dægradvöl er á daegradvol(hja)isafjordur.is


    Forstöðumaður: Eva María Einarsdóttir 


    Hafa samband:

    Austurvegi 9

    400 Ísafjörður

    Sími: 450 8059

    daegradvol@isafjordur.is


    https://www.isafjardarbaer.is/is/stjornsysla/stofnanir/allar-stofnanir/daegradvol

  • Mötuneyti

  • Áætlun strætisvagna

    Strætisvagnar Ísafjarðarbæjar tengja saman byggðarkjarna og nýtast íbúum til að komast í og úr skóla og vinnu. Áætlunin er fyrst og fremst sniðin eftir því en einnig til að íbúar geti nýtt sér þjónustu á vegum sveitarfélagsins, ríkis og einkaaðila sem einungis er í boði á Ísafirði.


    Ferðir skólabíla eru frá Hnífsdal og úr firðinum kl. 7:40 og til baka frá skóla kl. 13:15, 14:00 og 14:40.

    Strætisvagnar í Ísafjarðarbæ

Heim

Matseðill

Skóladagatal

Gagnlegir hlekkir


Myndataka er óheimil í skólanum nema með sérstöku leyfi. Síminn á aldrei að trufla kennslustund og á að vera geymdur í skáp nemenda eða heima.

Símareglur


Markmið starfsmanna-stefnunnar er að sjá til þess að skólinn sé aðlaðandi vinnustaður þar sem þróast fagþekking, verkkunnátta og mikill vilji til þess að þjónusta nemendur og foreldra.

Starfsfólk