
Grunnskólinn á Suðureyri
Ástundun
·
Árangur · Ánægja
Þjónusta
Námsráðgjöf
Námsráðgjafi skólans í fjarfundi er Hildur Björg VIlhjálmasdóttir . Hún er við skólann 1x í mánuði á miðvikudögum milli: 10:00 - 12:00.
Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er meðal annars að:
leiðbeina nemendum um góð vinnubrögð og námsvenjur
veita nemendum ráðgjöf í einkamálum
aðstoða nemendur við að gera sér grein fyrir áhugasviðum sínum og setja sér markmið
vera stuðningsmaður nemenda vegna erfiðleika eða áfalla,
aðstoða nýja nemendur við aðlögun
sinna fyrirbyggjandi starfi með fræðslu og ráðgjöf
vinna með kennurum og öðru starfsfólki að bættum samskiptum í skólanum og gegn einelti
vera meðlimur í nemendaverndarráði
halda utan um vinnslu eineltismála innan skólans
Skólahjúkrun
Skólahjúkrunarfræðingar skólans eru:
Henný Þrastardóttir
sími 450-8300
netfang: skolahjukrun@isafjordur.is
Nemendaverndarráð
Nemendaverndarráð skólans er skipað samkvæmt heimildarákvæði í grunnskólalögum. Nemendaverndarráð starfar í samræmi við það sem segir í 39. gr. laga um grunnskóla, nr.66/1995: "Í grunnskóla er heimilt að stofna nemendaverndarráð til að samræma störf þeirra sem sjá um málefni einstakra nemenda varðandi námsráðgjöf, sérfræðiþjónustu og heilsugæslu."
Hlutverk ráðsins er að fylgjast sérstaklega með nemendum sem af einhverjum ástæðum líður illa eða eiga í einhverjum erfiðleikum í skólanum. Nemendarverndarráð tekur sameiginlegar ákvarðanir um málefni einstakra nemenda eða nemendahópa. Því er einnig ætlað að fjalla um skipulag og framkvæmd skólastarfsins og að vera ráðgefandi fyrir skólastjóra um hvernig best skuli stuðla að jákvæðu námsumhverfi og alhliða velferð nemenda.
Í nemendaverndarráði sitja skólastjóri, skólahjúkrunarfræðingur, námsráðgjafi og fulltrúar Skóla- og tómstundasviðs og barnaverndar.
Eineltisvarnarteymi
Í Grunnskólanum á Suðureyri er lögð áhersla á að byggja upp góð samskipti hjá nemendum og efla félagslegan þroska þeirra. Til öryggis hafa verið settar reglur um hvernig fara skuli með samskiptavanda sem er af því tagi að flokka megi hann sem einelti. Mikilvægt er að allir starfsmenn og nemendur séu meðvitaðir um hvað einelti er, hvernig það birtist og hvernig unnið er með eineltismál í skólanum. Einelti er ekki liðið undir neinum kringumstæðum og flokkast sem brot á skólareglum.
Ef upp koma eineltismæal er allra leiða leitað til að leysa þau og skilgreindir hafa verið verkferlar fyrir starfsfólk til að vinna samkvæmt. Ávallt skal gæta trúnaðar í meðferð eineltismála.
Ef grunur vaknar um að einelti sé í gangi skal umsjónakennari nemanda þegar hefja úrvinnslu samkvæmt skilgreindum ferlum skólans.
Dægradvöl
Helstu markmið stefnunnar er að kenna börnum og unglingum sjálfstjórn og ábyrga hegðun með því að gefa þeim tækifæri til að bæta fyrir mistök sín og kenna þeim að mæta þörfum sínum á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Litið er á hugtakið mistök sem eðlilegan þátt í lærdómsferli, það sé eðlilegt að gera mistök og að mistökin nýtist sem ákveðið skref í þroska. Einstaklingur fær tækifæri til að takast á við mistök sín á uppbyggilegan hátt, skoða hvað það var sem hann gerði rangt og hvað hann hefði getað gert öðruvísi.Hann lærir að bæta fyrir mistök sín og finnur hvernig hann styrkist af því. Þetta næst ekki ef hann er skammaður eða niðurlægður. Áhersla er lögð á að þjálfa nemendur í að skoða eigin hegðun og ræða um hvernig þeir ætli að bregðast við sambærilegum aðstæðum næst í stað þess að gera sömu mistökin aftur. Þegar nemendur eru lausir undan hótunum, sektarkennd og loforðum um umbun fær hann tækifæri til að meta lífsgildi sín og styrkjast í að vera ávallt besta útgáfan af sjálfum sér.
Uppbygging auðveldar uppalendum og þeim sem vinna með börnum/unglingum að setja sér skýr mörk varðandi samskipti og aga.
Uppeldi til ábyrðar stuðlar að jákvæðum samskiptum, hvetur til sjálfstæðrar hugsunar og þroskar jákvætt gildismat.
Öll hegðun hefur tilgang, við gerum ekkert að ástæðulausu.
Mötuneyti
Mötuneyti er starfrækt við skólann. Boðið er upp á mat meðan skólinn er starfræktur.
Áætlun strætisvagna
Myndataka er óheimil í skólanum nema með sérstöku leyfi. Síminn á aldrei að trufla kennslustund og á að vera geymdur í skáp nemenda eða heima.
Símareglur
Markmið starfsmanna-stefnunnar er að sjá til þess að skólinn sé aðlaðandi vinnustaður þar sem þróast fagþekking, verkkunnátta og mikill vilji til þess að þjónusta nemendur og foreldra.
