Heim

Starfsfólk

Matseðill

Farsæld barna

Mentor

Skóladagatal

Grunnskólinn á Ísafirði

Virðing · Samhugur · Menntun

Grunnskólinn á Ísafirði

Virðing · Samhugur · Menntun

Nemendur

Nemendur

  • Nemendaráð

    Upplýsingar um nemendaráð skólaárið 2026–2027 verða birtar hér þegar þær liggja fyrir.


  • Djúpið - félagsmiðstöð

    Félagsmiðstöðin er staðsett í kjallara Sundlaugar Ísafjarðarbæjar.


    Opnunartími:

    Mánudagar: 19.30 - 22.00

    Miðvikudagar: 19.30 -22.00

    Föstudagar: 19.30 - 22.30


    Það eru strætóferðir fyrir unglingana sem fer rétt fyrir hálf 8 strætóleiðina og stoppar hjá Bíóinu og fer svo aftur strætóleiðina frá Bíóinu þegar félagsmiðstöðinni líkur á kvöldin.


    Instagramsíða féló


    Við erum einnig með facebook síður með upplýsingum og dagskrá hvers mánaðar hérna:

     


    Fyrir foreldra : https://www.facebook.com/groups/320887351707890/ 


    Fyrir nemendur: https://www.facebook.com/groups/1690476894501326/ 

  • Skólanámskrár

  • Valgreinar

  • Erasmus +

    Heimsókn til Portúgal í október

     


    Nemendur 9. og 10. bekkjar eru búin að vera í Barcelos, Portúgal, síðan á sunnudagskvöld. Þau hafa verið að fræðast um heimsmarkmið SÞ (Sameinuðu Þjóðanna) og menningu Portúgal.


    Mánudagur 7. október fóru þau í labbitúr í skóla Portúgalska liðsins, Rosa Ramalho School. Þau fengu að smakka Portúgölsk sætindi og ost. Portúgalska liðið sýndi þeim um skólann sinn og fræddi þá um sögu skólans. Eftir það söfnuðum við okkur saman og héldum pizza party. Þar var karaoke og alls konar annað skemmtilegt. Þegar öll liðin höfðu lokið við að borða fóru þau á bókasafnið til að kynna kynningar um bæinn sinn. Þetta var frábær leið fyrir þau að deila upplýsingum um sína menningu og sögu.


    Þegar kynningunum lauk fóru þau í myndmenntarstofu þar sem þau máluðu á flísa heimsmarkmið 17. Þetta verkefni var bæði skapandi og mikilvægt, þar sem það lagði áherslu á að hver og einn getur lagt sitt af mörkum til að gera heiminn betri. Þegar kvöldið nálgaðist var boðið upp á kvöldmat á veitingastaðnum “Gilliano” í félagsskap þýska liðsins. Þar var mikil stemming, og allir nutu góðs matar og samveru. Eftir daginn, sem var fullur af skemmtun, fræðslu og nýjum vináttu, var loksins kominn tími til að kveðja, og dagurinn endaði með brosum og gleði.

  • Snjalltæki

    Spjaldtölvur í Grunnskólanum á Ísafirði


    Í GÍ eru spjaldtölvur frá Apple notaðar í öllum árgöngum. Í 1.-4. bekk eru 4-5 tæki í

    hverjum bekk. Í 5.-10. bekk er eitt tæki á hvern nemanda. Tækin eru alfarið í eigu GÍ.

    Gerður er þríhliða samningur milli skóla, nemanda og forráðamanns um notkun á

    tækinu. Tækið er eingöngu notað í kennslustundum.


    Samkomulag um snjalltækjanotkun

    í Grunnskólanum á Ísafirði



    Nánar um spjaldtölvur í Grunnskólanum á Ísafirði


  • Skólasafn

    Afgreiðslutími:

    Bókasafnið er opið alla skóladaga, frá kl. 8-14. 


    Netfang:

    skolabok@isafjordur.is


    Sími:

    Hægt er að hringja í aðalnúmer skólans 450-8300. Bein lína á bókasafnið er 450-8310.


    Starfsmenn:


    Rannveig Halldórsdóttir, bókasafnsfræðingur

    Jóndís Sigurrós Einarsdóttir , bókavörður



    Á skólasafninu er aðstaða fyrir nemendur til að læra, vinna verkefni og afla sér heimilda hvort sem er úr bókum eða af netinu. Á safninu eru 12 borðtölvur og prentari, ætlað fyrir nemendur.

    Einnig geta nemendur komið á skólasafnið til að spila, tefla eða lesa sér til skemmtunar en þá er nauðsynlegt að gæta þess að trufla ekki þá nemendur sem eru við vinnu.


    Hlutverk og reglur

    Hlutverk skólasafnsins er:  


    - að örva börn og unglinga til að lesa bækur sér til fróðleiks og skemmtunar en jafnframt að nýta sér aðra miðla á skapandi hátt.


    - að kenna nemendum að verða sjálfstæðir notendur bókasafna og að þau geti aflað sér upplýsinga á eigin spýtur


    Reglur:


    - Bókasafnið er vinnustaður, nemendur skulu ekki vera þar í biðtíma nema þeir hafi verkefni að vinna.


    - Háreysti, hlaup og köll eru ekki leyfð á safninu. Á safninu á að vera gott vinnuumhverfi.


    - Á safninu er ekki heimilt að vera með nesti eða sælgæti.


    - Nemendur mega vinna verkefni fyrir skólann á þeim tölvum sem þar eru. Netnotkun er háð leyfi starfsmanna.


    - Yfirhafnir skal hengja í fatahengi fyrir framan bókasafnið.


    - Ekki skal taka bækur af safninu nema starfsmaður gefi leyfi og skrái útlán.


    - Nemendur geta fengið skáldsögur og fræðibækur að láni.


    - Handbækur eru einungis til afnota í skólanum.


    - Annar safnkostur s.s. kennsluleiðbeiningar, myndbandsspólur, geisladiskar o.fl. eru aðeins lánaðar til kennara og starfsfólks.


    - Útlánstími er 1 mánuður.

  • Skólareglur



Heim

Matseðill

Skóladagatal

Gagnlegir hlekkir


Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar í skólanum. Kröfur um ástundun og árangur eru jafnmiklar og í öðrum greinum.

Valgreinar


Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar í skólanum. Kröfur um ástundun og árangur eru jafnmiklar og í öðrum greinum.


Námsvísar


Myndataka er óheimil í skólanum nema með sérstöku leyfi. Síminn á aldrei að trufla kennslustund og á að vera geymdur í skáp nemenda eða heima.

Símareglur


Markmið starfsmanna-stefnunnar er að sjá til þess að skólinn sé aðlaðandi vinnustaður þar sem þróast fagþekking, verkkunnátta og mikill vilji til þess að þjónusta nemendur og foreldra.

Starfsfólk