Skóladagatöl á stafrænu formi
Skóladagatöl Grunnskóla Ísafjarðarbæjar fyrir skólaárið 2026–2027 eru nú aðgengileg á stafrænu formi.
Foreldrar, forsjáraðilar og starfsfólk geta sótt dagatöl skólanna beint í eigið dagatal og haft þannig góða yfirsýn yfir helstu dagsetningar skólaársins.
Dagatölin eru á ICS-sniði og virka með helstu dagatalsforritum, svo sem Outlook, Google Calendar og Apple Calendar.

Leiðbeiningar fyrir
uppsetningu á dagatölum
Android - Google Calandar
- Sæktu dagatalið (.ics)
- Búðu til nýtt dagatal og gefðu því nafn skólans.
- Farðu í Stillingar → Flytja inn og út og veldu Flytja inn (Import).
- Veldu .ics-skrána sem þú sóttir.
- Veldu dagatal skólans sem á að taka við viðburðunum.
- Smelltu á Flytja inn (Import) til að staðfesta.
Sjá ítarlegri leiðbeiningar hjá Google um að flytja inn dagatal
Leiðbeiningar um að búa til nýtt dagatal
Mac - Apple Calendar
- Sæktu dagatalið (.ics).
- Opnaðu Calendar.
- Búðu til nýtt dagatal með nafni skólans.
- Veldu File → Import og opnaðu .ics-skrána.
- Veldu dagatal skólans.
- Veldu OK til að staðfesta.
Outlook - Microsoft
- Sæktu dagatalið (.ics).
- Opnaðu Calendar í Outlook.
- Búðu til nýtt dagatal með nafni skólans.
- Veldu Add calendar → Upload from file.
- Veldu .ics-skrána og dagatal skólans.
- Veldu Import til að staðfesta.