This is a subtitle for your new post

Nemendur í 4. bekk unnu saman í pörum að því að kaupa inn fyrir uppskrift fyrir innkaupaverkefni. Í boði voru þrjár mismunandi uppskriftir og hvert par fékk eina þeirra úthlutaða. Pörin fengu mismunandi peningaupphæðir sem þau áttu að nota við innkaupin.
Á ganginum höfðum við sett upp þrjár verslanir: Bónus, Nettó og Krónuna. Vöruúrvalið var ekki eins í öllum verslununum og því þurftu nemendur að bera saman verð og finna þær vörur sem vantaði. Annar nemandinn í hverju pari fór út á gang til að skoða verð á innihaldsefnum. Ekki mátti skrifa verðin niður, heldur þurfti viðkomandi að muna þau og segja liðsfélaga sínum þegar komið var aftur í kennslustofuna.
Þegar pörin höfðu safnað saman öllum verðum þurftu þau að reikna út heildarkostnaðinn. Þau margfölduðu verð eftir því magni sem þurfti af hverju innihaldsefni og lögðu síðan allar upphæðirnar saman. Ef afgangur var eftir þegar búið var að kaupa allt sem þurfti í uppskriftina, máttu þau velja eitthvað aukalega í eftirrétt. Ef peningarnir dugðu ekki þurftu þau hins vegar að ákveða hvaða atriði væri hægt að sleppa.
Að lokum teiknuðu nemendur það sem þau höfðu keypt og settu myndirnar í innkaupapoka. Pokarnir voru síðan hengdir upp á vegg ásamt upplýsingablöðum um verkefnið.














