GÍ - Öryggi barna á leið í skóla

Grunnskólinn á Ísafirði • 18. nóvember 2026

This is a subtitle for your new post

Kæru foreldrar og forráðamenn

Við viljum minna á mikilvægi þess að sýna sérstaka aðgát í umferðinni við skólann á morgnana þegar nemendur eru að mæta í skólann.

Undanfarið hefur borið á því að ökutæki stöðvi mjög nálægt inngöngum og jafnvel aki upp á gangstéttir og leiksvæði nemenda. Slíkt getur skapað óþarfa hættu fyrir börn og starfsfólk sem eru á leið til og frá skólanum.

Með þessum pósti fylgir mynd þar sem bent er á nokkra heppilega staði í nágrenni skólans þar sem hægt er að hleypa börnum út úr bíl á öruggan hátt. Markmiðið er að draga úr umferðarhættu við skólalóðina. Við hvetjum foreldra til að nýta sér þessa staði þegar kostur er og leyfa börnunum að ganga síðasta spölinn að skólanum.

Við biðlum jafnframt til foreldra að:

  • Aka ekki upp á gangstéttir.
  • Aka ekki inn á leiksvæði nemenda.
  • Stöðva aðeins þar sem það er heimilt og öruggt.
  • Sýna sérstaka varúð gagnvart gangandi börnum í nágrenni skólans.

Við Aðalstræti er sérinngangur fyrir nemendur sem vegna fötlunar eða slyss þurfa sérstakt aðgengi að skólanum.

Með því að sýna tillitssemi í umferðinni og fylgja þessum einföldu leiðbeiningum getum við öll lagt okkar af mörkum til að gera leið barna til skólans öruggari.

Við þökkum ykkur fyrir samstarfið og stuðninginn.

Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 18. nóvember 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 18. nóvember 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 4. nóvember 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar • 2. nóvember 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Suðureyri • 30. október 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 26. október 2026
This is a subtitle for your new post
7. október 2026
This is a subtitle for your new post
2. október 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 29. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar • 25. september 2026
This is a subtitle for your new post
Show More