Síðustu vikur fyrir jól

Grunnskóli Önundarfjarðar • 12. desember 2025

Jólasýning í Safnahúsinu

Þessar síðustu vikur hafa að mestu einkennst af vinnu við jólaverkefnið sem er samstarfsverkefni fámennu skólanna. Nemendur eru nú að leggja lokahönd á verkefnin sín sem verða sett upp á sýningu í Safnahúsinu á Ísafirði og munum við upplýsa ykkur þegar sýningin opnar. Nemendurnir í 1.–2. bekk hafa unnið fjölbreytt verkefni í íslensku, samfélagsfræði og list- og verkgreinum þar sem þau hafa meðal annars búið til jólasvein, lært og samið ljóð, fræðst um jólahefðir og tekið viðtöl um mismunandi venjur. Nemendur í 4.–7. bekk hafa fjallað um jól í öðrum löndum og unnið með lönd starfsfólks Ísafjarðarbæjar, sem eru yfir 20 talsins. Þar hafa nemendur safnað upplýsingum um jólamat, skreytingar, trú og tónlist og sett afraksturinn fram á plaköt sem fara bæði á sýninguna og á heimasíðu skólans. Framundan er síðasta vikan fyrir jól þar sem ýmislegt jólastúss verður á dagskrá, meðal annars piparkökuhúsabakstur, jólakortagerð, Tarzan leikur í íþróttahúsinu með leikskólabörnum, jólaball í leikskólanum og að lokum jólamatur á Gunnukaffi.

Eftir Grunnskólinn á Þingeyri 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 20. ágúst 2026
Skólasetning
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 20. ágúst 2026
Skólasetning Grunnskóla Önundarfjarðar verður mánudaginn 24. ágúst klukkan 10:00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst. Hlökkum til að taka á móti ykkur.
Eftir Grunnskólinn á Þingeyri 2. júlí 2026
Grunnskólanum á Þingeyri var slitið í 129. skiptið 5. júní sl.
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 10. júní 2026
Nú er sumarið framundan og viljum við hvetja alla, stóra sem smáa, til að njóta sumarlesturs. Bókasafnið á Ísafirði býður upp á lestrarsprett til 20. ágúst fyrir yngri börnin og fer skráning fram á safninu. Skólinn stendur fyrir spurningakeppni 5.-7. bekkjar í haust, þar sem nemendur þurfa að lesa ákveðnar bækur sem verða til umfjöllunar. Nú er lag fyrir þá nemendur að nýta sumarið til lesturs þessara bóka og má sjá bókalistann á meðfylgjandi mynd. Við vonum svo sannarlega að allir verði duglegir að lesa í sumar og njóti lestursins, því eins og við vitum þá er alltaf veður til að lesa. Gleðilegt lestrarsumar!
Show More