GÍ - Hræringur á miðstigi

Grunnskólinn á Ísafirði • 2. september 2026

This is a subtitle for your new post

Ræktun, bakstur og bras er eitt valfagið í svokölluðum hræringi á miðstigi, en þar setja árstíðirnar svip sinn á verkefnavalið.

Í morgun í góða veðrinu skelltu nemendur sér með Diddu heimilisfræðikennara og Þóru stuðningsfulltrúa upp í Stórurð í berjamó og sveppakönnunarleiðangur.

Því miður höfðu einhverjir bæjarbúar verið á undan krökkunum á staðinn svo aðalbláberin voru að mestu uppurin. Fólk fór þó aldeilis ekki erindisleysu. Auk þeirra góðu áhrifa, sem svona göngutúr hefur á sál og líkama, fundu krakkarnir nokkurt magn af svokölluðum laxaberjum og einnig rifsberjum.


Það sem vakti þó mesta forvitni og gleði var heilmikið af fallegum og heilum furusveppum sem krakkarnir rákust á. Furusveppir eru mjög góðir matsveppir og er auðvelt að þekkja þá frá öðrum tegundum. Kennarinn lagði ríka áherslu á það að börnin skildu aldrei tína sveppi sem þau ekki þekktu því ótal tegundir eru óætar og sumar beinlínir hættulegar heilsu fólks.

Þeir nemendur sem vildu fengu sveppi með sér heim og ætluðu að fá foreldra sína til þess að hjálpa þeim við að gera eitthvað gómsætt úr þeim.

Eftir Grunnskólinn á Þingeyri 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 20. ágúst 2026
Skólasetning
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 20. ágúst 2026
Skólasetning Grunnskóla Önundarfjarðar verður mánudaginn 24. ágúst klukkan 10:00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst. Hlökkum til að taka á móti ykkur.
Eftir Grunnskólinn á Þingeyri 2. júlí 2026
Grunnskólanum á Þingeyri var slitið í 129. skiptið 5. júní sl.
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 10. júní 2026
Nú er sumarið framundan og viljum við hvetja alla, stóra sem smáa, til að njóta sumarlesturs. Bókasafnið á Ísafirði býður upp á lestrarsprett til 20. ágúst fyrir yngri börnin og fer skráning fram á safninu. Skólinn stendur fyrir spurningakeppni 5.-7. bekkjar í haust, þar sem nemendur þurfa að lesa ákveðnar bækur sem verða til umfjöllunar. Nú er lag fyrir þá nemendur að nýta sumarið til lesturs þessara bóka og má sjá bókalistann á meðfylgjandi mynd. Við vonum svo sannarlega að allir verði duglegir að lesa í sumar og njóti lestursins, því eins og við vitum þá er alltaf veður til að lesa. Gleðilegt lestrarsumar!
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 10. júní 2026
Grunnskólanum á Ísafirði var slitið í 151. skipti föstudaginn 5. júní síðastliðinn og fór athöfnin fram í Ísafjarðarkirkju. Jón Hálfdán Pétursson, deildarstjóri unglingastigs setti athöfnina, en að því loknu tóku kynnar við, þau Emilía Rós Sindradóttir og Garðar Logi Guðmundsson, nemendur í 9.bekk. Guðbjörg Halla Magnadóttir skólastjóri, flutti ávarp og það gerðu einnig þau Saga Björgvinsdóttir og Hilmir Norðfjörð fyrir hönd útskriftarnema. Nemendur buðu upp á tónlistaratriði þar sem Kristín Eik Sveinbjörnsdóttir lék Sonatinu í G-dúr eftir Ludwig van Beethoven. Eftirtaldar viðurkenningar voru veittar í 8. og 9. bekk: 8. bekkur - Ylfa K. Rósinkara Tómasdóttir hlaut viðurkenningu Rotary klúbbsins á Ísafirði fyrir ástundun og framfarir. 9. bekkur - Dagbjört Sjöfn Magnúsdóttir hlaut viðurkenningu Rotary klúbbsins á Ísafirði fyrir ástundun og framfarir. Eftirtaldar viðurkenningar voru veittar í 10. bekk: Rotary klúbburinn á Ísafirði veitti viðurkenningu fyrir ástundun og framfarir í 10. bekk og hana hlaut Sölvey Marie Tómasdóttir. Kvenfélagið Hvöt gaf eftirfarandi viðurkenningar fyrir verk- og listgreinar: Viðurkenningu fyrir framfarir og vinnubrögð í í smíði og hönnun hlaut Sigríður Jóna Haraldsdóttir. Viðurkenningu fyrir listræna hæfileika, jákvæðni og áhugasemi í myndmennt hlaut Roza Matijevic Ismailovski. Viðurkenningu fyrir brennandi áhuga, kraft og dugnað í heimilisfræði hlaut Heimir Logi Samúelsson. Stöðin Heilsurækt gaf viðurkenningar fyrir góða ástundun og námsárangur í íþróttum. Þær viðurkenningar hlutu Hilmir Norðfjörð og Saga Björgvinsdóttir. Danska Menntamálaráðuneytið gaf viðurkenningu fyrir góða ástundun, vinnusemi, góð skil og framfarir í dönsku og hlaut Saga Björgvinsdóttir þau verðlaun. Grunnskólinn á Ísafirði veitti eftirfarandi viðurkenningar: Viðurkenningu fyrir metnað, góða ástundun og námsárangur í stærðfræði hlaut Saga Björgvinsdóttir. Viðurkenningu fyrir góða ástundun og námsárangur í náttúrufræði hlaut Saga Björgvinsdóttir. Viðurkenningu fyrir góða ástundun og námsárangur í samfélagsfræði hlaut Þórey Þórsdóttir. Viðurkenningu fyrir góða ástundun og námsárangur í ensku hlaut Guðmundur Arnór Shiransson. Viðurkenningu fyrir frumkvæði, ábyrgð og áreiðanleika í tækniráði hlutu þeir Jakob Ingi Ingvarsson og Ólafur Pálmi Birgisson. Dokkupúkinn veitti verðlaun í íslensku til minningar um Ölmu Guðrúnu Frímannsdóttur, fyrrverandi kennara G.Í. Þau verðlaun hlaut Kristín Eik Sveinbjörnsdóttir fyrir metnað, góða ástundun og námsárangur. Starfsfólk Grunnskólans á Ísafirði þakkar árgangi 2010 samfylgdina í gegnum árin og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.
Show More