GÞ -Treyjudagur

Grunnskólinn á Þingeyri • 4. september 2026

This is a subtitle for your new post

Í dag var heldur betur skemmtilegt um að litast í skólanum. Það sem var öðruvísi var að fullt af nemendum mættu í allskyns treyjum til að styðja við verkefnið VIÐ ERUM ÖLL Í SAMA LIÐI fyrir börn með krabbamein.


Það skiptir ekki máli hvaða liði þú heldur með. Á treyjudeginum erum við öll í sama liði fyrir börn með krabbamein. Skólinn ætlar að leggja 10 þús. inn á verkefnið og hvetjum við alla sem geta að taka þátt.

 

Treyjudagurinn hefur verið haldin í nokkrum löndum síðan árið 2013. Á nokkrum árum hefur verkefnið stækkað og átakið sameinað þúsindir einstaklinga, fyrirtækja, skóla og íþróttafélaga í stuðningi við börn með krabbamein og fjölskyldur þeirra.

 

Árið 2026 bættist Ísland í hópinn.

 

Skemmtilegt og þarft verkefni. 



4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 20. ágúst 2026
Skólasetning
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 20. ágúst 2026
Skólasetning Grunnskóla Önundarfjarðar verður mánudaginn 24. ágúst klukkan 10:00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst. Hlökkum til að taka á móti ykkur.
Eftir Grunnskólinn á Þingeyri 2. júlí 2026
Grunnskólanum á Þingeyri var slitið í 129. skiptið 5. júní sl.
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 10. júní 2026
Nú er sumarið framundan og viljum við hvetja alla, stóra sem smáa, til að njóta sumarlesturs. Bókasafnið á Ísafirði býður upp á lestrarsprett til 20. ágúst fyrir yngri börnin og fer skráning fram á safninu. Skólinn stendur fyrir spurningakeppni 5.-7. bekkjar í haust, þar sem nemendur þurfa að lesa ákveðnar bækur sem verða til umfjöllunar. Nú er lag fyrir þá nemendur að nýta sumarið til lesturs þessara bóka og má sjá bókalistann á meðfylgjandi mynd. Við vonum svo sannarlega að allir verði duglegir að lesa í sumar og njóti lestursins, því eins og við vitum þá er alltaf veður til að lesa. Gleðilegt lestrarsumar!
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 10. júní 2026
Grunnskólanum á Ísafirði var slitið í 151. skipti föstudaginn 5. júní síðastliðinn og fór athöfnin fram í Ísafjarðarkirkju. Jón Hálfdán Pétursson, deildarstjóri unglingastigs setti athöfnina, en að því loknu tóku kynnar við, þau Emilía Rós Sindradóttir og Garðar Logi Guðmundsson, nemendur í 9.bekk. Guðbjörg Halla Magnadóttir skólastjóri, flutti ávarp og það gerðu einnig þau Saga Björgvinsdóttir og Hilmir Norðfjörð fyrir hönd útskriftarnema. Nemendur buðu upp á tónlistaratriði þar sem Kristín Eik Sveinbjörnsdóttir lék Sonatinu í G-dúr eftir Ludwig van Beethoven. Eftirtaldar viðurkenningar voru veittar í 8. og 9. bekk: 8. bekkur - Ylfa K. Rósinkara Tómasdóttir hlaut viðurkenningu Rotary klúbbsins á Ísafirði fyrir ástundun og framfarir. 9. bekkur - Dagbjört Sjöfn Magnúsdóttir hlaut viðurkenningu Rotary klúbbsins á Ísafirði fyrir ástundun og framfarir. Eftirtaldar viðurkenningar voru veittar í 10. bekk: Rotary klúbburinn á Ísafirði veitti viðurkenningu fyrir ástundun og framfarir í 10. bekk og hana hlaut Sölvey Marie Tómasdóttir. Kvenfélagið Hvöt gaf eftirfarandi viðurkenningar fyrir verk- og listgreinar: Viðurkenningu fyrir framfarir og vinnubrögð í í smíði og hönnun hlaut Sigríður Jóna Haraldsdóttir. Viðurkenningu fyrir listræna hæfileika, jákvæðni og áhugasemi í myndmennt hlaut Roza Matijevic Ismailovski. Viðurkenningu fyrir brennandi áhuga, kraft og dugnað í heimilisfræði hlaut Heimir Logi Samúelsson. Stöðin Heilsurækt gaf viðurkenningar fyrir góða ástundun og námsárangur í íþróttum. Þær viðurkenningar hlutu Hilmir Norðfjörð og Saga Björgvinsdóttir. Danska Menntamálaráðuneytið gaf viðurkenningu fyrir góða ástundun, vinnusemi, góð skil og framfarir í dönsku og hlaut Saga Björgvinsdóttir þau verðlaun. Grunnskólinn á Ísafirði veitti eftirfarandi viðurkenningar: Viðurkenningu fyrir metnað, góða ástundun og námsárangur í stærðfræði hlaut Saga Björgvinsdóttir. Viðurkenningu fyrir góða ástundun og námsárangur í náttúrufræði hlaut Saga Björgvinsdóttir. Viðurkenningu fyrir góða ástundun og námsárangur í samfélagsfræði hlaut Þórey Þórsdóttir. Viðurkenningu fyrir góða ástundun og námsárangur í ensku hlaut Guðmundur Arnór Shiransson. Viðurkenningu fyrir frumkvæði, ábyrgð og áreiðanleika í tækniráði hlutu þeir Jakob Ingi Ingvarsson og Ólafur Pálmi Birgisson. Dokkupúkinn veitti verðlaun í íslensku til minningar um Ölmu Guðrúnu Frímannsdóttur, fyrrverandi kennara G.Í. Þau verðlaun hlaut Kristín Eik Sveinbjörnsdóttir fyrir metnað, góða ástundun og námsárangur. Starfsfólk Grunnskólans á Ísafirði þakkar árgangi 2010 samfylgdina í gegnum árin og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.
Show More