This is a subtitle for your new post

Foreldrafélag Grunnskólans á Ísafirði býður til hausthátíðar og frístundakynningu sem haldin verður í samstarfi við Ísafjarðarbæ.
Markmiðið er að eiga saman skemmtilega stund og gefa börnum og foreldrum tækifæri til að kynna sér það fjölbreytta íþrótta- og frístundastarf sem stendur börnum til boða í bænum.
Við hvetjum ykkur til að koma, hitta aðrar fjölskyldur, njóta samverunnar og sjá hvað er í boði fyrir börnin í vetur.
Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna hér:
https://www.facebook.com/share/1EvW4b4Rx3/
Öll
fjölskyldan er hjartanlega velkomin og við hlökkum til að sjá ykkur!










