Þemað þessar vikurnar er hafið.

Þemað þessar vikurnar er Hafið. Í dag vorum við svo heppin að fá að fylgjast með og taka þátt í því hvernig harðfiskur er verkaður. Næst er að setja á rár, pækla og hengja upp í hjallinum en það verður gert á morgun og ætlum við að taka þátt í því líka
Nemendurnir voru líka mjög spennt fyrir tönnunum í steinbítnum. Við ákváðum að taka nokkra hausa með í skólann og sjóða úti á báli til að auðvelda okkur verkið (eða bara afþví að það er gaman að brasa)
Takk fyrir okkur Sunna, Maggi og Friðrik









