Skólafréttir

Jóna Lára Sveinbjörnsdóttir • 22. september 2023

Í dag lauk Barnamenningarhátíðinni Púkinn sem staðið hefur yfir síðustu tvær vikur. Við fórum á lokahátíð sem haldin var í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Þar fengum við að sjá brot af því sem gert hefur verið um alla Vestfirði og síðan héldu Gunni og Felix uppi fjörinu og fengu okkur til að syngja og dansa sem var mjög skemmtilegt.

Í vikunni kláruðu krakkarnir að skrifa ,,Sumarið mitt - myndir og minningar" sem eru frásagnir út frá mynd úr sumarfríinu. Sögur yngra stigisin hanga í glugga skólans þar sem gestir og gangandi geta staldrað við og lesið ein einnig var sögum frá nemendum allra grunnskólanna safnað saman á vef Púkans pukinnhatid.is/smasogur þar sem gaman er að lesa um ólíkar upplifanir frá sumrinu. 

Við fengum  Völu frá Amnesty International í heimsókn til miðstigsins og kynnti hún samtökin fyrir nemendum, hin ýmsu mannréttindaþemu og mannréttindi í víðu samhengi. 

Önnur heimsókn sem við fengum fyrir alla nemendur var frá Evu Rún Þorgeirsdóttur rithöfundi og Blæ Guðmundsdóttur teiknara en þær voru með verkefnið Svakalegar sögur sem er á vegum List fyrir alla. Þeirra innlegg var um það hvernig allir geta fengið hugmyndir og búið til sögur og hvers vegna það er mikilvægt að æfa ímyndunaraflið. Nemendur tóku þátt í að skapa sögupersónu sem fékk nafnið Rúbý AB og sömdu svo sögu hennar sem litaðist af allskyns ævintýrum.

Örnefnaverkefnið okkar varð umfjöllunarefni nemenda í frétt sem þau sendu til BB og má lesa hér  Frétt frá Púkunum í Grunnskóla Önundarfjarðar  . Eftir að fréttin af verkefninu birtist hafði áhugasamur heimamaður, Gumbi, samband og ætlar hann að fræða nemendur enn frekar um örnefni í nágrenninu. Það verður heldur betur spennandi að sjá og upplifa hvert þetta verkefni leiðir okkur. 



Eftir Grunnskólinn á Þingeyri 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 20. ágúst 2026
Skólasetning
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 20. ágúst 2026
Skólasetning Grunnskóla Önundarfjarðar verður mánudaginn 24. ágúst klukkan 10:00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst. Hlökkum til að taka á móti ykkur.
Eftir Grunnskólinn á Þingeyri 2. júlí 2026
Grunnskólanum á Þingeyri var slitið í 129. skiptið 5. júní sl.
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 10. júní 2026
Nú er sumarið framundan og viljum við hvetja alla, stóra sem smáa, til að njóta sumarlesturs. Bókasafnið á Ísafirði býður upp á lestrarsprett til 20. ágúst fyrir yngri börnin og fer skráning fram á safninu. Skólinn stendur fyrir spurningakeppni 5.-7. bekkjar í haust, þar sem nemendur þurfa að lesa ákveðnar bækur sem verða til umfjöllunar. Nú er lag fyrir þá nemendur að nýta sumarið til lesturs þessara bóka og má sjá bókalistann á meðfylgjandi mynd. Við vonum svo sannarlega að allir verði duglegir að lesa í sumar og njóti lestursins, því eins og við vitum þá er alltaf veður til að lesa. Gleðilegt lestrarsumar!
Show More