Eitt af því sem eflir heilsu, seiglu og þrautseigju nemenda í Grunnskóla Önundarfjarðar eru daglegar gönguferðir í mötuneytið sem staðsett er í Gunnukaffi. Nemendur hafa mælt vegalengdina milli skóla og mötuneytis sem er um 500 metrar og því ljóst að nemendur ganga ekki styttra er einn kílómeter hvern skóladag. Vegna covid hafa komið tímabil sem við höfum ekki farið í mötuneytið heldur borðað í grunnskólanum en nú er vonandi síðasta slíku tímabili lokið. Á meðfylgjandi myndum má sjá ánægjuna skína úr hverju andliti í gönguferðum dagsins enda allir vel búnir og yfir hverju ætti þá að kvarta? Yngri nemendurnir fóru meira að segja í tvær gönguferðir í dag þar sem það var samvinnudagur leik og grunnskóla og þótti betra að fylgja leiksólastjórnanum og hennar nemendum í öruggt skjól að samvinnu lokinni.
Kílómeter á dag kemur öllu í lag
Grunnskóli Önundarfjarðar • 17. mars 2022


Eftir Grunnskólinn á Ísafirði
•
10. júní 2026
Nú er sumarið framundan og viljum við hvetja alla, stóra sem smáa, til að njóta sumarlesturs. Bókasafnið á Ísafirði býður upp á lestrarsprett til 20. ágúst fyrir yngri börnin og fer skráning fram á safninu. Skólinn stendur fyrir spurningakeppni 5.-7. bekkjar í haust, þar sem nemendur þurfa að lesa ákveðnar bækur sem verða til umfjöllunar. Nú er lag fyrir þá nemendur að nýta sumarið til lesturs þessara bóka og má sjá bókalistann á meðfylgjandi mynd. Við vonum svo sannarlega að allir verði duglegir að lesa í sumar og njóti lestursins, því eins og við vitum þá er alltaf veður til að lesa. Gleðilegt lestrarsumar!







