Fréttir frá vikunni 19-23. sept

Jóna Lára Sveinbjörnsdóttir • 26. september 2022

Fréttir af starfsfólki: 

Í síðustu viku hóf nýr starfsmaður störf hjá okkur, Viktor Páll og leysir þau verkefni sem átti eftir að manna. Viktor verður starfsmaður dægradvalar en það er langt síðan við höfum haft eins stóran hóp i dægradvöl eins og nú er eða 10 börn. Auk þess að vera með dægradvölina verður Viktor með smíðakennslu, heimilisfræði og íþróttir. 

Jóna Lára kennir sundið ásamt því að vera með umsjón yfir yngri hópnum og kenna þeim eldri dönsku og vera með útieldhús fyrir báða hópa. 

Mekkín er með umsjón yfir eldri hópnum og kennir báðum hópum tónmennt. 

Sunna kemur inn í íslenskutíma í báðum hópum auk þess sem hún sér um jóga, hugleiðslu og slökun. 

Agata er skólaliði og sér um að halda öllu hreinu og snyrtilegu auk þess sem hún fer út með nemendum í frímínútum og í mat í hádeginu.

Og þetta er að segja af náminu: 

Í lestrinum hefur mínútlestri verið bætt við til viðbótar við yndislestur og eru nemendur iðnir og keppast við að bæta eigin árangur. Þau á miðstiginu eru einnig að rifja upp orðflokkana. Í dönsku og ensku hefur áherslan verið á lestur, lesskining, orðaforða og orðflokka. Leikurinn Wordle /orðla hefur vakið mikla lukku í enskutímum. 

Hjá þeim yngri er einnig yndislestrarstund hvern dag og í íslenskutímum unnið með lestur, lesskilning, orðaforð og ritun. 

Í stærðfræðinni vinna þau yngstu með  tölur, talningu og talnaskilning á fjölbreyttan og hlutbundinn hátt og þau eldri hafa verið að æfa sig í margföldum, spilað ýmsa stærðfræðileiki og öll vinna þau einnig í Minecraft education.


Haustþemað er vinna með umhverfið og í þessari viku voru teknar upp kartöflur og gerðir kartöfluklattar og vallhumals- og myntute í útieldhúsinu. Einn nemandi kom með sveppi (gorkúlur) til okkar í skólann sem voru steiktir í olíu og smjöri og smökkuðust einsog popp. 

Yngri nemendurnir eru að gera umhverfisbók. Plöntur og laufblöð sem þau fundu við skólann eru komin í pressun. Þetta verður svo límt inní bók sem þau búa til. Markmiðið er að allir búi til sína eigin bók með jurtum, þörungum og smádýrum úr umhverfinu sínu.

Þau eldri eru að læra um fjöruna og halda dagbók til að fylgjast með sjávarföllunum og útliti fjörunnar. Í samfélagsfræði eru þau að læra um Evrópu. Á fimmtudaginn unnu þau í uppbyggingarstefnunni og fóru yfir það saman hvað gerir góðan skóla og góðan bekk. Auk þess skilgreindum þau hlutverk nemenda og hlutverk kennara.


Á þriðjudaginn gerðu eldri nemendur teikningastækkara (e.pantograph), sem er tól sem hægt er að nota til afrita og skala myndir.


Á fimmtudaginn fóru allir nemendur í skutlukeppni og rauf sú langdrægasta 10 metra múrinn. 

Þetta er brot af því sem fengist er við í Grunnskóla Önundarfjarðar og gefur ykkur vonandi innsýn í það fjölbreytta og skapandi starf sem hér er unnið með það að markmiði að rækta hæfileika einstaklingsins og gera nemendur jafnt góða sem fróða. 

Sýn Grunnskóla Önundarfjarðar er að allir hafa hið góða í sér og möguleikann til að verða betri manneskjur. 

Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 10. júní 2026
Nú er sumarið framundan og viljum við hvetja alla, stóra sem smáa, til að njóta sumarlesturs. Bókasafnið á Ísafirði býður upp á lestrarsprett til 20. ágúst fyrir yngri börnin og fer skráning fram á safninu. Skólinn stendur fyrir spurningakeppni 5.-7. bekkjar í haust, þar sem nemendur þurfa að lesa ákveðnar bækur sem verða til umfjöllunar. Nú er lag fyrir þá nemendur að nýta sumarið til lesturs þessara bóka og má sjá bókalistann á meðfylgjandi mynd. Við vonum svo sannarlega að allir verði duglegir að lesa í sumar og njóti lestursins, því eins og við vitum þá er alltaf veður til að lesa. Gleðilegt lestrarsumar!
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 10. júní 2026
Grunnskólanum á Ísafirði var slitið í 151. skipti föstudaginn 5. júní síðastliðinn og fór athöfnin fram í Ísafjarðarkirkju. Jón Hálfdán Pétursson, deildarstjóri unglingastigs setti athöfnina, en að því loknu tóku kynnar við, þau Emilía Rós Sindradóttir og Garðar Logi Guðmundsson, nemendur í 9.bekk. Guðbjörg Halla Magnadóttir skólastjóri, flutti ávarp og það gerðu einnig þau Saga Björgvinsdóttir og Hilmir Norðfjörð fyrir hönd útskriftarnema. Nemendur buðu upp á tónlistaratriði þar sem Kristín Eik Sveinbjörnsdóttir lék Sonatinu í G-dúr eftir Ludwig van Beethoven. Eftirtaldar viðurkenningar voru veittar í 8. og 9. bekk: 8. bekkur - Ylfa K. Rósinkara Tómasdóttir hlaut viðurkenningu Rotary klúbbsins á Ísafirði fyrir ástundun og framfarir. 9. bekkur - Dagbjört Sjöfn Magnúsdóttir hlaut viðurkenningu Rotary klúbbsins á Ísafirði fyrir ástundun og framfarir. Eftirtaldar viðurkenningar voru veittar í 10. bekk: Rotary klúbburinn á Ísafirði veitti viðurkenningu fyrir ástundun og framfarir í 10. bekk og hana hlaut Sölvey Marie Tómasdóttir. Kvenfélagið Hvöt gaf eftirfarandi viðurkenningar fyrir verk- og listgreinar: Viðurkenningu fyrir framfarir og vinnubrögð í í smíði og hönnun hlaut Sigríður Jóna Haraldsdóttir. Viðurkenningu fyrir listræna hæfileika, jákvæðni og áhugasemi í myndmennt hlaut Roza Matijevic Ismailovski. Viðurkenningu fyrir brennandi áhuga, kraft og dugnað í heimilisfræði hlaut Heimir Logi Samúelsson. Stöðin Heilsurækt gaf viðurkenningar fyrir góða ástundun og námsárangur í íþróttum. Þær viðurkenningar hlutu Hilmir Norðfjörð og Saga Björgvinsdóttir. Danska Menntamálaráðuneytið gaf viðurkenningu fyrir góða ástundun, vinnusemi, góð skil og framfarir í dönsku og hlaut Saga Björgvinsdóttir þau verðlaun. Grunnskólinn á Ísafirði veitti eftirfarandi viðurkenningar: Viðurkenningu fyrir metnað, góða ástundun og námsárangur í stærðfræði hlaut Saga Björgvinsdóttir. Viðurkenningu fyrir góða ástundun og námsárangur í náttúrufræði hlaut Saga Björgvinsdóttir. Viðurkenningu fyrir góða ástundun og námsárangur í samfélagsfræði hlaut Þórey Þórsdóttir. Viðurkenningu fyrir góða ástundun og námsárangur í ensku hlaut Guðmundur Arnór Shiransson. Viðurkenningu fyrir frumkvæði, ábyrgð og áreiðanleika í tækniráði hlutu þeir Jakob Ingi Ingvarsson og Ólafur Pálmi Birgisson. Dokkupúkinn veitti verðlaun í íslensku til minningar um Ölmu Guðrúnu Frímannsdóttur, fyrrverandi kennara G.Í. Þau verðlaun hlaut Kristín Eik Sveinbjörnsdóttir fyrir metnað, góða ástundun og námsárangur. Starfsfólk Grunnskólans á Ísafirði þakkar árgangi 2010 samfylgdina í gegnum árin og óskar þeim velfarnaðar í framtíðinni.
Eftir Grunnskólinn á Suðureyri 21. maí 2026
Vorferð
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 1. maí 2026
Þemað þessar vikurnar er hafið.
30. apríl 2026
Frá árinu 2013 höfum við haldið nemendaþing annað hvert skólaár. Markmið þessara umræðuþinga eru fjögur; - að veita nemendum tækifæri til að taka þátt í lýðræðislegri samræðu um málefni sem hefur merkingu fyrir daglegt líf þeirra og skipulag skólastarfsins - að efla vitund nemenda um eigin áhrif í skólastarfinu - að fá fram rödd og sjónarhorn nemenda í ýmsum málaflokkum - að fá fram tillögur frá nemendum um hvað hægt er að gera til að hafa jákvæð áhrif á deglegt starf í skólanum. Þingin hafa verið sett upp með formlegu sniði, þar sem borðstjórar hafa komið úr efri bekkjum og fengið sérstaka þjálfun í að virkja samnemendur til þátttöku og að stýra umræðum þannig að allir fái að tjá sig. Viðfangsefnin hafa verið þessi: skólasamfélagið, kynjajafnrétti, samfélagsmiðlar, samskipti, símanotkun, einelti, og hvernig gerum við góðan skóla betri. Sjöunda nemendaþing skólans var haldið 27.janúar 2026 og var viðfangsefnið líðan og hegðun. Í fyrsta skipti í sögu nemendaþinganna tók allur skólinn þátt frá 1.bekk og upp úr, en hingað til hefur yngsta stigið ekki verið með. Það reyndi því enn frekar á unglingana okkar að stýra þeim yngstu og fá fram svörun frá öllum. Nemendum skólans var skipt í 14 hópa á hverju stigi, eða samtals 42 hópa og komu hópstjórar úr 7. - 10. bekk. Einkunnarorð skólans eru virðing, samhugur og menntun og var það kjarninn í umræðunum. Hópstjórar hófu starfið með því að lesa úr barnasáttmálanum um réttindi barna, þar sem segir að börn eigi rétt á því að tjá sig frjálslega um öll málefni sem hafa áhrif á líf þeirra og að fullorðnir eigi að hlusta og taka mark á þeim. Í framhaldinu voru lagðar fyrir 6 spurningar: 1. Virðing - hvernig sjáum við hana, heyrum hana og finnum hana? 2. Samhugur - hvernig sjáum við hann, heyrum hann og finnum hann? 3. Góð líðan - hvernig sjáum við hana, heyrum hana og finnum hana? 4. Hvað getur þú gert til að þér líði betur? 5. Hvað getur starfsfólk skólans gert til að þér líði betur? 6. Hvað getur þú gert til að öðrum líði betur? Nemendur tjáðu sig allir á post-it miða, sem voru settir við hverja spurningu. Nemendaráð fékk svo það hlutverk að taka saman niðurstöður allra 42 hópanna. Nú í vikunni fór nemendaráð svo inn í alla bekki og kynnti niðurstöðurnar, sem voru svo hengdar upp á öllum göngum skólans. Kennarar munu svo nýta þær enn frekar til umræðna og ígrundunar inni í bekkjum. Niðurstöðurnar eru skýrar hjá nemendum og má sjá kjarnann í þeim innrammaðan á hverju spjaldi. Vinnan sem fram fór í hópunum er einnig ómetanleg, þar sem allir nemendur höfðu rödd, sem hefur svo jákvæð áhrif á skólastarfið. 
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 12. desember 2025
Jólasýning í Safnahúsinu
Eftir Helga Snorradóttir 2. október 2025
Bleikur október er runninn upp, þar sem landsmenn eru hvattir til að lýsa upp skammdegið í bleikum ljóma, svo allar konur sem greinst hafa með krabbamein finni stuðning og samstöðu. Bleiki dagurinn verður miðvikudaginn 22.október, en þar sem hann ber upp á starfsdag hjá okkur þetta árið, þá hvetjum við nemendur og starfsfólk til að klæðast einhverju bleiku föstudaginn 24.október. Skólasafnið okkar er komið í októberfötin og býður upp á úrval bleikra bóka. 
Eftir Vilborg Ása Bjarnadóttir 8. apríl 2025
This is a subtitle for your new post
Eftir Jóna Lára Sveinbjörnsdóttir 1. apríl 2025
skák
25. mars 2025
Árshátíð GÍ 2025
Show More