Fréttir af skólastarfi vikuna 11. – 15. nóvember.

Jóna Lára Sveinbjörnsdóttir • 15. nóvember 2024

Eins og flestir vita var vatnsleysi á Flateyri í vikunni og skólinn auðvitað engin undantekning þar á. Vatnsleysið gaf okkur m.a. tækifæri til að ræða mikilvægi vatns og hversu háð við erum því í daglegu lífi. Sérstaklega var rætt um vatnsnotkun tengda klósettferðum og hversu ómissandi hreint vatn er í því samhengi. Nemendur tóku þessu vatnsleysi með miklu jafnaðargeði en hugsanlega hafa þau aldrei verið jafn þyrst og þar sem skólastjórinn býr á Ísafirði fengu þau hreint og ferskt ísfirskt vatn að drekka. Sumir töldu sig finna bragðmun sem við munum rannsaka við tækifæri þegar að vatnið á Flateyri er komið í lag.

Annað sem við tökum okkur fyrir hendur fyrir utan almenna kennslu er t.d. skákkennsla en nemendur eru allir með amk. einn fastan skáktíma á viku í töflu. Nemendur læra grunnatriði skákarinnar og fá að æfa sig og keppa við hvert annað. Skák eflir m.a. einbeitingu, þjálfar rökhugsun og félagsfærni. Skákkennsla er einnig frábær leið til að styrkja þolinmæði og sjálfstæða hugsun, svo eitthvað sé nefnt.

Í fámennum skóla skiptir máli að þjálfa samvinnu og félagsfærni þar sem að nemendur vinna oft saman í fjölbreyttum hópum þvert á aldur og getu. Í litlum hópum hefur hver einstaklingur áhrif á heildina og hvetur þessi þjálfun til ábyrgðar, trausts og samheldni. Auk þess undirbýr þetta nemendur fyrir lífið í fámennu samfélagi, þar sem samstarf og samskipti eru mikilvæg. Slík þjálfun styrkir skólabraginn og skólasamfélagið í heild. Við nýtum m.a. félagsfærnispilið sem og fjölbreytta samvinnu- og samskiptaleiki.

Áhugasvið nemenda í GÖ eru fjölbreytt og leggjum við áherslu á að efla þau jafnt í námi sem og í frjálsum tíma. Nemendur hafa m.a. aðgang að hljóðfærum í tónlistarstofunni til að æfa sig, prjóna þegar að það á við, hnoðast undir leiðsögn, velja sér bækur útfrá áhuga og nýta verkmenntastofuna til fjölbreyttra verka.

Þessa stundina taka nokkrir nemendur þátt í uppsetningu leikritsins Blái hnötturinn á vegum Leikfélags Flateyrar og hvetjum við öll til að gera sér ferð á sýningu.

Eftir Grunnskólinn á Þingeyri 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 20. ágúst 2026
Skólasetning
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 20. ágúst 2026
Skólasetning Grunnskóla Önundarfjarðar verður mánudaginn 24. ágúst klukkan 10:00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst. Hlökkum til að taka á móti ykkur.
Eftir Grunnskólinn á Þingeyri 2. júlí 2026
Grunnskólanum á Þingeyri var slitið í 129. skiptið 5. júní sl.
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 10. júní 2026
Nú er sumarið framundan og viljum við hvetja alla, stóra sem smáa, til að njóta sumarlesturs. Bókasafnið á Ísafirði býður upp á lestrarsprett til 20. ágúst fyrir yngri börnin og fer skráning fram á safninu. Skólinn stendur fyrir spurningakeppni 5.-7. bekkjar í haust, þar sem nemendur þurfa að lesa ákveðnar bækur sem verða til umfjöllunar. Nú er lag fyrir þá nemendur að nýta sumarið til lesturs þessara bóka og má sjá bókalistann á meðfylgjandi mynd. Við vonum svo sannarlega að allir verði duglegir að lesa í sumar og njóti lestursins, því eins og við vitum þá er alltaf veður til að lesa. Gleðilegt lestrarsumar!
Show More