Ég veit - úrslit

Guðný Stefanía Stefánsdóttir • 29. nóvember 2024

Ég veit! spurningakeppni miðstigs var í dag. Undanfarna mánuði hafa krakkarnir á miðstigi verið undirbúa sig fyrir spurningakeppnina með því að lesa 8 valdar skáldsögur. Valdir voru þrír fulltrúar úr hverjum bekk í keppnislið en samt sem áður þurftu allir að undirbúa sig vel því oft getur keppnisliðið fengið hjálp frá bekknum sínum til að svara spurningunum.

Þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag kepptu bekkirnir í stigakeppni, þau tvö lið sem voru með hæstu samanlögðu stigin kepptu svo til úrslita í dag en það voru 6. AS og 7. JE. Svo fór að 6. AS bar sigur úr býtum og hreppti farandbikarinn Vitann sem mun tilheyra bekknum fram að næstu keppni sem áætlað er að halda að ári.

Einnig fékk keppnisliðið sjálft verðlaun en það var Penninn Eymundsson sem gaf hverjum liðsmanni bókina Orri óstöðvandi Heimsfrægur á Íslandi  eftir Bjarna Fritz að gjöf. Við óskum þeim innilega til hamingju með sigurinn og um leið óskum við öllum nemendum á miðstigi til hamingju með vel heppnaðan undirbúning og skemmtun.

Eftir Grunnskólinn á Þingeyri 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 20. ágúst 2026
Skólasetning
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 20. ágúst 2026
Skólasetning Grunnskóla Önundarfjarðar verður mánudaginn 24. ágúst klukkan 10:00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst. Hlökkum til að taka á móti ykkur.
Eftir Grunnskólinn á Þingeyri 2. júlí 2026
Grunnskólanum á Þingeyri var slitið í 129. skiptið 5. júní sl.
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 10. júní 2026
Nú er sumarið framundan og viljum við hvetja alla, stóra sem smáa, til að njóta sumarlesturs. Bókasafnið á Ísafirði býður upp á lestrarsprett til 20. ágúst fyrir yngri börnin og fer skráning fram á safninu. Skólinn stendur fyrir spurningakeppni 5.-7. bekkjar í haust, þar sem nemendur þurfa að lesa ákveðnar bækur sem verða til umfjöllunar. Nú er lag fyrir þá nemendur að nýta sumarið til lesturs þessara bóka og má sjá bókalistann á meðfylgjandi mynd. Við vonum svo sannarlega að allir verði duglegir að lesa í sumar og njóti lestursins, því eins og við vitum þá er alltaf veður til að lesa. Gleðilegt lestrarsumar!
Show More