9. og 10. bekkir fóru í náms- og menningarferð til Reykjavíkur

Erna Höskuldsdóttir • 21. mars 2023

Farið var að morgni miðvikudagsins 15. mars með “skólabíl” – 5 vaskir nemendur, umsjónarkennari og náms- og starfsráðgjafi. Leiðin lá til Reykjavíkur þar sem fara átti á Íslandsmeistaramót í iðn- og verkgreinum og framhaldsskólakynningar sem fóru fram í Laugardalshöll og eru til að sjá að það eru óþrjótandi möguleikar á því hvað maður vill gera í framtíðinni og leggja stund á. Hér má sjá smá myndband af hátíðinni.  https://www.youtube.com/watch?v=xaOQnFG5Hyw

           Þar sáu krakkarnir margt áhugavert og marga þátttakendur og þeir áhugasömustu kynntu sér margs konar námsframboð. Einnig var farið í Alþingishúsið og þar fengum við leiðsögn um húsið, fórum í Vísindasmiðju Háskóla Íslands og hittum Sprengju-Kötu og aðra efna/eðlisfræðinga sem sögðu okkur frá því hvað vísindi geta verið skemmtileg. Þar mátti líka fikta og prufa ýmislegt. Við fórum líka í Perluna á sýningu um lífríkið í fersku vatni á Íslandi.
                En þetta var ekki bara námsferð, heldur brugðu krakkarnir sér á skauta í Egilshöllinni og við fórum líka í keilu á sama stað. Þar var sett upp keppni milli nemenda í G.Þ., nemenda í G.S. (en 9. og 10. bekkur Grunnskólans á Suðureyri fór líka í þessa ferð ásamt kennurum þar) og kennaranna í ferðinni. Þar skemmtu allir sér konunglega og sýndu ýmis tilþrif. Keppnisskapið tók sig aðeins upp og það var bara gaman. Síðan var haldið heim á leið upp úr hádegi á föstudeginum 17. og allir kátir og glaðir með ferðina.
En svona ferð kostar sitt og ekki hægt að fara í svona ferðir nema fá einhvers staðar styrki. Við vorum svo heppin að Artic fish styrkti ferðina um 100.000 kr. og erum við þeim mjög þakklát fyrir það. Gott að eiga góða að.

Margar myndir voru teknar í ferðinni til að varðveita minningar – og hér má sjá nokkrar þeirra.

 

Eftir Grunnskólinn á Þingeyri 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 4. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 2. september 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 20. ágúst 2026
Skólasetning
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar 20. ágúst 2026
Skólasetning Grunnskóla Önundarfjarðar verður mánudaginn 24. ágúst klukkan 10:00. Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá þriðjudaginn 25. ágúst. Hlökkum til að taka á móti ykkur.
Eftir Grunnskólinn á Þingeyri 2. júlí 2026
Grunnskólanum á Þingeyri var slitið í 129. skiptið 5. júní sl.
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði 10. júní 2026
Nú er sumarið framundan og viljum við hvetja alla, stóra sem smáa, til að njóta sumarlesturs. Bókasafnið á Ísafirði býður upp á lestrarsprett til 20. ágúst fyrir yngri börnin og fer skráning fram á safninu. Skólinn stendur fyrir spurningakeppni 5.-7. bekkjar í haust, þar sem nemendur þurfa að lesa ákveðnar bækur sem verða til umfjöllunar. Nú er lag fyrir þá nemendur að nýta sumarið til lesturs þessara bóka og má sjá bókalistann á meðfylgjandi mynd. Við vonum svo sannarlega að allir verði duglegir að lesa í sumar og njóti lestursins, því eins og við vitum þá er alltaf veður til að lesa. Gleðilegt lestrarsumar!
Show More