10. bekkur í heimsókn í MÍ

Erna Höskuldsdóttir • 13. mars 2024

Í dag litu 10. bekkingar upp úr árshátíðarundirbúningi og skelltu sér á kynningu hjá Menntaskólanum á Ísafirði. En MÍ stendur árlega fyrir kynningu á námi og félagslífi fyrir 10. bekkinga á Vestfjörðum. Þar voru saman komnir tæplega 70 10. bekkingar úr grunnskólunum á norðanverðum Vestfjörðum. Skólastarfið var kynnt vel fyrir nemendum og einnig kynnti nemendaráð sig og sína starfsemi, því félagslíf framhaldsskólanema er jú stór partur af framhaldsskólalífinu.

Einnig var Háskóladagurinn fluttur vestur, því allir háskólarnir voru með kynningu á sínu námi fyrir menntskælinga og aðra gesti og nutu okkar 10. bekkingar góðs af því. Þó framhaldsskólinn sé auðvitað fyrst á dagskrá er gott að sjá hvað er í boði eftir 3-4 ár.
Að lokum fórum við svo á Vörumessu sem ungir frumkvöðlar í áfanganum Hugmyndir og nýsköpun sýndu afrakstur sinn.

Þetta var mjög skemmtilegur og fræðandi dagur. 

Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 18. nóvember 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 18. nóvember 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 18. nóvember 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 4. nóvember 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskóli Önundarfjarðar • 2. nóvember 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Suðureyri • 30. október 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 26. október 2026
This is a subtitle for your new post
7. október 2026
This is a subtitle for your new post
2. október 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Grunnskólinn á Ísafirði • 29. september 2026
This is a subtitle for your new post
Show More