Starfsfólk

Matseðill

Farsæld barna

Mentor

Heim

Skóladagatal

Um Grunnskólann á Suðureyri

Árið 1908 að fyrsti skólinn á Suðureyri reistur, en hann var byggður í kjölfar þess að lög um skólaskyldu voru sett árið 1907. Þetta fyrsta skólahúsnæði samanstóð af tveimur kennslustofum auk áhaldaherbergis. Skólinn fékk strax nauðsynlegustu kennslutæki og áhöld ásamt orgeli.

Áður höfðu Súgfirðingar lítillar menntunar notið utan þess að farandkennarar höfðu verið í Súgandafirði fyrir og um aldamótin 1900, en sú kennsla fór að mestu fram inn á heimilum fólks. Einnig voru dæmi þess að efnameiri menn fengu heimiliskennara fyrir börn sín.

Friðrik Hjartar var fyrsti kennari við hinn nýja skóla á Suðureyri og var hann skólastjóri skólans allt til ársins 1932.

Árið 1958 var nýtt og stærra skólahúsnæði tekið í notkun og leysti það gamla húsið af hólmi, en það var orðið lélegt. Árið 1983 var tekin í notkun viðbygging við skólann og var það helmings stækkun á skólanum. Í þessari stækkun eru verkgreinastofur fyrir smíði, hússtjórn og hannyrðir. Einnig er þar góð aðstaða fyrir kennara. Síðan hefur verið komið upp bókasafni og skólinn er með sérstaka tölvustofu.

Í janúar 2006 var vígt nýtt glæsilegt íþróttahús sem er sambyggt skólahúsinu. Innangegnt er milli skóla, íþróttahúss og sundlaugar sem vígð var 1994. Búningsaðstaða er sameiginleg fyrir íþróttahús og sundlaug. Nemendur skólans koma frá Suðureyri og sveitinni þar í kring. Suðureyri tilheyrir Ísafjarðabæ.





Grunnskólinn á Suðureyri

Túngata 8

430 Suðureyri

sími: 4508390

Helstu upplýsingar


Skólastjóri er Vilborg Ása Bjarnadóttir


Umsjónakennari 1. - 4. bekkjar er Ólöf Birna Jensen


Umsjónakennari 5 - 7  bekkjar er  Jóhannes Aðalbjörnsson


Umsjónakennari 8. - 10.bekkjar og staðgengill skólastjóra er Bryndís Birgisdóttir




Skólahúsnæði og skrifstofa skólans er opin frá kl.07:50 og lokar kl.15:30 en á föstudögum lokar kl.15:00


Ritstjórar vefsíðu eru skólastjórnendur.