Starfsfólk

Matseðill

Farsæld barna

Mentor

Heim

Skóladagatal

Grunnskólinn á Suðureyri

Ástundun · Árangur · Ánægja



Þjónusta

Grunnskólinn á Suðureyri


Ástundun   ·   Árangur ·   Ánægja


Þjónusta


  • Námsráðgjöf

    Námsráðgjafi skólans í fjarfundi er Hildur Björg VIlhjálmasdóttir . Hún er við skólann 1x í mánuði á miðvikudögum milli: 10:00 - 12:00. 


    Hlutverk náms- og starfsráðgjafa er meðal annars að:


    leiðbeina nemendum um góð vinnubrögð og námsvenjur

    veita nemendum ráðgjöf í einkamálum

    aðstoða nemendur við að gera sér grein fyrir áhugasviðum sínum og setja sér markmið

    vera stuðningsmaður nemenda vegna erfiðleika eða áfalla,

    aðstoða nýja nemendur við aðlögun

    sinna fyrirbyggjandi starfi með fræðslu og ráðgjöf

    vinna með kennurum og öðru starfsfólki að bættum samskiptum í skólanum og gegn einelti

    vera meðlimur í nemendaverndarráði

    halda utan um vinnslu eineltismála innan skólans

  • Skólahjúkrun

    Skólahjúkrunarfræðingar skólans eru:

    Henný Þrastardóttir 


    sími 450-8300


    netfang: skolahjukrun@isafjordur.is

  • Nemendaverndarráð

    Nemendaverndarráð skólans er skipað samkvæmt heimildarákvæði í grunnskólalögum. Nemendaverndarráð starfar í samræmi við það sem segir í 39. gr. laga um grunnskóla, nr.66/1995: "Í grunnskóla er heimilt að stofna nemendaverndarráð til að samræma störf þeirra sem sjá um málefni einstakra nemenda varðandi námsráðgjöf, sérfræðiþjónustu og heilsugæslu."


    Hlutverk ráðsins er að fylgjast sérstaklega með nemendum sem af einhverjum ástæðum líður illa eða eiga í einhverjum erfiðleikum í skólanum. Nemendarverndarráð tekur sameiginlegar ákvarðanir um málefni einstakra nemenda eða nemendahópa. Því er einnig ætlað að fjalla um skipulag og framkvæmd skólastarfsins og að vera ráðgefandi fyrir skólastjóra um hvernig best skuli stuðla að jákvæðu námsumhverfi og alhliða velferð nemenda.


    Í nemendaverndarráði sitja skólastjóri, skólahjúkrunarfræðingur, námsráðgjafi og fulltrúar Skóla- og tómstundasviðs og barnaverndar.

  • Eineltisvarnarteymi

    Í Grunnskólanum á Suðureyri er lögð áhersla á að byggja upp góð samskipti hjá nemendum og efla félagslegan þroska þeirra. Til öryggis hafa verið settar reglur um hvernig fara skuli með samskiptavanda sem er af því tagi að flokka megi hann sem einelti. Mikilvægt er að allir starfsmenn og nemendur séu meðvitaðir um hvað einelti er, hvernig það birtist og hvernig unnið er með eineltismál í skólanum. Einelti er ekki liðið undir neinum kringumstæðum og flokkast sem brot á skólareglum. 

    Ef upp koma eineltismæal er allra leiða leitað til að leysa þau og skilgreindir hafa verið verkferlar fyrir starfsfólk til að vinna samkvæmt. Ávallt skal gæta trúnaðar í meðferð eineltismála. 

    Ef grunur vaknar um að einelti sé í gangi skal umsjónakennari nemanda þegar hefja úrvinnslu samkvæmt skilgreindum ferlum skólans. 


  • Dægradvöl

    Nemendum í 1. - 4. bekk í grunnskólum Ísafjarðabæjar býðst að fara í dægradvöl eftir að skóla lýkur á daginn. 

    Leikskólinn Tjarnarbær býður upp á dægradvöl fyrir nemendur í Grunnskólanum á Suðureyri . 

    Hægt er að hafa samband við Svövu Rán Valgerirsdóttur leikskólastjóra í síma 450-8290

  • Mötuneyti

    Mötuneyti er starfrækt við skólann. Boðið er upp á mat meðan skólinn er starfræktur. 

  • Áætlun strætisvagna


Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar í skólanum. Kröfur um ástundun og árangur eru jafnmiklar og í öðrum greinum.

Valgreinar


Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar í skólanum. Kröfur um ástundun og árangur eru jafnmiklar og í öðrum greinum.


Námsvísar


Myndataka er óheimil í skólanum nema með sérstöku leyfi. Síminn á aldrei að trufla kennslustund og á að vera geymdur í skáp nemenda eða heima.

Símareglur


Markmið starfsmanna-stefnunnar er að sjá til þess að skólinn sé aðlaðandi vinnustaður þar sem þróast fagþekking, verkkunnátta og mikill vilji til þess að þjónusta nemendur og foreldra.

Starfsfólk