Grunnskólinn á Suðureyri
Ástundun · Árangur · Ánægja
Fyrir foreldra

Grunnskólinn á Suðureyri
Ástundun · Árangur · Ánægja
Foreldrar

Foreldrafélag GS
Samkvæmt lögum um grunnskóla 91/2008 skal vera starfandi foreldrafélag.
9. gr. Foreldrafélag.
- Við grunnskóla skal starfa foreldrafélag. Skólastjóri er ábyrgur fyrir stofnun þess og sér til þess að félagið fái aðstoð eftir þörfum. Hlutverk foreldrafélags er að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla.
- Foreldrafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð.
Reglur um nemendaheimsóknir
Reglur um nemendaheimsóknirReglur um nemendaheimsóknir í grunnskólum Ísafjarðabæjar.
Smelltu á hnappinn til að hlaða niður skjali.
Dægradvöl
Nemendum í 1.-4. bekk í grunnskólum Ísafjarðarbæjar býðst að fara í dægradvöl eftir að skóla lýkur á daginn þar til klukkan fjögur. Leikskólinn Tjarnarbær býður upp á dægradvöl í leikskólanum.
Hægt er að hafa samband við Svövu Rán Valgeirsdóttir leikskólastjóra. Sími: 450-8290
Reglur v/slysa
Reglur um endurgreiðsluReglur um endurgreiðslu kostnaðar vegna slysa og tjóna er börn verða fyrir í skipulögðu starfi á vegum Ísafjarðabæjar.
Áætlun strætisvagna
Strætisvagnar í ÍsafjarðarbæStrætisvagnar Ísafjarðarbæjar tengja saman byggðarkjarna og nýtast íbúum til að komast í og úr skóla og vinnu. Áætlunin er fyrst og fremst sniðin eftir því en einnig til að íbúar geti nýtt sér þjónustu á vegum sveitarfélagsins, ríkis og einkaaðila sem einungis er í boði á Ísafirði.
Skólahald og veðurviðvaranir
Óveður - skólahald fellt niður.
Þegar appelsínugular eða rauðar viðvaranir Veðurstofu Íslands eru í gildi hefur skólastjóri heimilid, í samræði við sviðstjóra, að fella niður skólastarf (grunn- leikskóla í Ísafjarðarbæ). Sé það gert þarf að tryggja að hægt verði að opna skóla fyrir börn neyðaraðila ef brýn nauðsyn krefur og er það á ábyrgð foreldra að tilkynna komu barnanna í skólann. Skólastjórnendur, í samráði við sviðstjóra, meta þá hvort nauðsynlegt sé að opna skólann fyrir þessi börn.
Ef skólahald er fellt niður er slíkt auglýst á vefsíðu skólans og tölvupóstur sendur á foreldra.
Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar í skólanum. Kröfur um ástundun og árangur eru jafnmiklar og í öðrum greinum.
Valgreinar
Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar í skólanum. Kröfur um ástundun og árangur eru jafnmiklar og í öðrum greinum.
Námsvísar
Myndataka er óheimil í skólanum nema með sérstöku leyfi. Síminn á aldrei að trufla kennslustund og á að vera geymdur í skáp nemenda eða heima.
Símareglur
Markmið starfsmanna-stefnunnar er að sjá til þess að skólinn sé aðlaðandi vinnustaður þar sem þróast fagþekking, verkkunnátta og mikill vilji til þess að þjónusta nemendur og foreldra.




