Grunnskóli Önundarfjarðar
Gleði · Ábyrgð · Virðing · Metnaður
Fyrir foreldra

Grunnskóli Önundarfjarðar
Gleði · Ábyrgð · Virðing · Metnaður
Fyrir foreldra

Foreldrafélag Önundarfjarðar
Facebooksíða foreldrafélagsinsForeldrafélag Önundarfjarðar er sameiginlegt foreldrafélag leikskólans Grænagarðs og Grunnskóla Önundarfjarðar
Í stjórn Foreldrafélagsins skólaárið 2025-2026 eru þau
Jóhann Ingi Þorsteinsson, formaður
Hanna Maggý Kristjánsdóttir, gjaldkeri
Hannibal Hafberg
Linda Björg Guðmundsdóttir
María Eugenia Chiarandini
Samkvæmt lögum um grunnskóla 91/2008 skal vera starfandi foreldrafélag.
9. gr. Foreldrafélag.
- Við grunnskóla skal starfa foreldrafélag. Skólastjóri er ábyrgur fyrir stofnun þess og sér til þess að félagið fái aðstoð eftir þörfum. Hlutverk foreldrafélags er að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla.
- Foreldrafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð.
Reglur um nemendaheimsóknir
Reglur um nemendaheimsóknirForeldrar eða forráðamenn hafa samband við skólastjóra grunnskólans ef óskað er eftir því að nemandi komi og dvelji tímabundið við Grunnskóla Önundarfjarðar.
Reglur um nemendaheimsóknir í grunnskólum Ísafjarðarbæjar.
Smelltu á hnappinn til að hlaða niður skjali.
Dægradvöl
Boðið er upp á dægradvöl frá lokum skóladags til klukkan 16:00 mánudaga til föstudaga. Dægradvöl er í boði fyrir 1.-4. bekk og fer starfið að mestu fram í húsnæði grunnskólans.
Stefna skólans er:
að tryggja börnum í 1. - 4. bekk áhugaverða, skemmtilega og örugga dvöl að lokinni hefðbundinni kennslu.
Markmið með starfinu í Dægradvölinni eru fyrst og fremst
- að nýta leik sem mikilvæga uppeldisaðferð.
- að virkja skapandi hugmyndaflug sérhvers barns á þess eigin forsendum.
- að kenna börnunum uppbyggileg samskipti við önnur börn og fullorðna.
- að kenna börnunum kurteisi og snyrtimennsku í allri umgengni.
Skólastjóri er yfirmaður dægradvalar og er sótt um hjá honum.
Reglur v/slysa
Reglur um endurgreiðsluReglur um endurgreiðslu kostnaðar vegna slysa og tjóna er börn verða fyrir í skipulögðu starfi á vegum Ísafjarðarbæjar
Áætlun strætisvagna
Strætisvagnar í ÍsafjarðarbæStrætisvagnar Ísafjarðarbæjar tengja saman byggðarkjarna og nýtast íbúum til að komast í og úr skóla og vinnu. Áætlunin er fyrst og fremst sniðin eftir því en einnig til að íbúar geti nýtt sér þjónustu á vegum sveitarfélagsins, ríkis og einkaaðila sem einungis er í boði á Ísafirði.
Skólahald og veðurviðvaranir
Sjá nánarÓveður – skólahald fellt niður
Þegar appelsínugular eða rauðar viðvaranir Veðurstofu Íslands eru í gildi hefur skólastjóri
heimild, í samráði við sviðsstjóra, að fella niður skólastarf (grunn- og leikskólar í Ísafjarðarbæ).
Sé það gert þarf að tryggja að hægt verði að opna skóla fyrir börn neyðaraðila ef brýn
nauðsyn krefur og er það þá á ábyrgð foreldra að tilkynna komu barnanna í skólann.
Skólastjórnendur, í samráði við sviðsstjóra, meta þá hvort nauðsynlegt sé að opna skólann
fyrir þessi börn.
Ef skólahald er fellt niður er slíkt auglýst á vefsíðu skólans, Facebook síðu skólans, svo og í
tölvupósti til foreldra, og eigi síðar en kl. 7:00 að morgni dags.
Tengiliður farsældar barna
Farsæld barnaTengiliður farsældar barna er:
Jóna Lára Sveinbjörnsdóttir, skólastjóri
jonasv(hja)isafjordur.is
Veikindi og leyfi nemenda
Umsókn um leyfiSækja þarf um leyfi ef um fleiri en tvo kennsludaga er að ræða, að öðrum kosti nægir munnlegt leyfi umsjónarkennara.
Gagnlegir hlekkir
Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar í skólanum. Kröfur um ástundun og árangur eru jafnmiklar og í öðrum greinum.
Valgreinar
Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar í skólanum. Kröfur um ástundun og árangur eru jafnmiklar og í öðrum greinum.
Námsvísar
Myndataka er óheimil í skólanum nema með sérstöku leyfi. Síminn á aldrei að trufla kennslustund og á að vera geymdur í skáp nemenda eða heima.
Símareglur
Markmið starfsmanna-stefnunnar er að sjá til þess að skólinn sé aðlaðandi vinnustaður þar sem þróast fagþekking, verkkunnátta og mikill vilji til þess að þjónusta nemendur og foreldra.




