Heim

Starfsfólk

Matseðill

Farsæld barna

Mentor

Skóladagatal

Grunnskólinn á Suðureyri

Ástundun · Árangur · Ánægja



Nemendur, nám og kennsla

Grunnskólinn á Suðureyri


Ástundun   ·   Árangur ·   Ánægja


Nemendur


  • Nemendaráð

    Nemendaráð Grunnskólans á Suðureyri skólaárið 2025-2026

    Formaður: Jósef Ægir Vernharðsson

    Gjaldkeri: Dawid Robert Szablowski

    Ritari: Praise Kenneth

    Meðstjórnendur: Signý Þorlaug Gísladóttir, Árdís Níni Liljudóttir, Amelía Gabara og Emilía Emilsdóttir.


  • Félagsmiðstöð

    Félagsmiðstöð er starfandi í skólanum og er hún opin 3 kvöld í viku. 

    Umsjónaraðili félagsmiðstöðvar er Emilia Górecka

  • Bekkjarnámskrár

  • Valgreinar

    Nemendur á unglingastigi fara tvisvar í viku í  Grunnskólanum á Ísafirði í valgreinar. 

    Á vorönn fara nemendur m.a. í heimilisfræði, líkamsrækt og þjálfun, stuttmyndagerð, Fab Lab, smíðar og himingeiminn. 

  • Snjalltæki


  • Skólasafn

    Bókasafn skólans er opið á skólatíma. Nemendur geta fengið lánaðar bækur  til að hafa í skólanum og heima. 

  • Skólareglur

    Skólareglur Grunnskólans á Suðureyri 


    Reglurnar voru endurskoðaðar á nemendaþingi í október 2025 og samþykktar á starfsmannafundi í maí 2026. 


    Umgengni: Við göngum vel og hljóðlega um skólann og berum virðingu fyrir eigum okkar og annarra. 


    Heilbrigði: Við hugum að heilsu okkar. 

    Kurteisi: Við berum virðingu fyrir skólaumhverfinu og komum fram við aðra eins og við viljum að aðrir komi fram við okkur. 

    Öryggi: Við stofnum okkur sjálfum eða öðrum ekki í hættu með orðum eða gjörðum. 


    Nánari skýringar: 

    Umgengni: Við berum  virðingu fyrir eigum okkar og annarra, berum sjálf ábyrgð á okkar persónulegu hlutum/eigum s.s. farartækjum, fatnaði, símum, myndavélum, spjaldtölvum, fartölvum og förum ávallt eftir fyrirmælum kennara og annars starfsfólks. Við geymum yfirhafnir á snögum og skó í hillum

    Göngum snyrtilega um allan skólann, skólastofur, matsal og salerni. 


    Heilbrigði: Við mætum tilbúin fyrir skóladaginn með því að vera búin að næra okkur vel. Við komum með hollt nesti. Öll notkun tóbaks, áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð í skólanum og á viðburðum sem tengjast honum. 

    Hreyfum okkur reglulega hvort sem er í íþróttastarfi eða göngutúr. Verum jákvæð því andleg heilsa skiptir máli. 


    Kurteisi: Við mætum stundvíslega, truflum ekki kennslustundir og sinnum náminu af áhuga. Við komum fram við aðra af kurteisi og virðingu 

    Verum jákvæð. Dæmum ekki aðra vegna útlits, þjóðernis eða kyns. Verum góðar fyrirmyndir fyrir aðra. Hrósum og hvetjum hvert annað. 

    Við tölum íslensku í tímum, á göngum og í frímínútum. 


    Öryggi: Við dveljum á skólalóðinni á skólatíma en notum ekki hjól, hlaupahjól, vespu eða önnur farartæki á skólalóðinni á skólatíma. Hjálmanotkun barna undir 15 ára aldri er skylda. Foreldrar bera ábyrgð á að því sé framfylgt. Skólinn ber ekki ábyrgð á tækjum eða öðrum verðmætum nemenda. 

    Við beitum ekki ógnunum, ögrunum, hótunum eða ljótum orðum. Andlegt og/eða líkamlegt ofbeldi er aldrei liðið þ.m.t. einelti. Barefli, vopn eða eldfæri má ekki koma með í skólann. Verum kurteis svo öðrum krökkum finnist þeir vera öruggir. Við höfum brunaæfingar reglulega yfir veturinn. 


    Skólareglur hanga á veggjum skólans. 



Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar í skólanum. Kröfur um ástundun og árangur eru jafnmiklar og í öðrum greinum.

Valgreinar


Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar í skólanum. Kröfur um ástundun og árangur eru jafnmiklar og í öðrum greinum.


Námsvísar


Myndataka er óheimil í skólanum nema með sérstöku leyfi. Síminn á aldrei að trufla kennslustund og á að vera geymdur í skáp nemenda eða heima.

Símareglur


Markmið starfsmanna-stefnunnar er að sjá til þess að skólinn sé aðlaðandi vinnustaður þar sem þróast fagþekking, verkkunnátta og mikill vilji til þess að þjónusta nemendur og foreldra.

Starfsfólk