Grunnskólinn á Suðureyri
Ástundun · Árangur · Ánægja
Nemendur, nám og kennsla

Grunnskólinn á Suðureyri
Ástundun · Árangur · Ánægja
Nemendur

Nemendaráð
Félagsmiðstöð
Félagsmiðstöð er starfandi í skólanum og er hún opin 3 kvöld í viku.
Umsjónaraðili félagsmiðstöðvar er Emilia Górecka
Bekkjarnámskrár
Valgreinar
Nemendur á unglingastigi fara tvisvar í viku í Grunnskólanum á Ísafirði í valgreinar.
Á vorönn fara nemendur m.a. í heimilisfræði, líkamsrækt og þjálfun, stuttmyndagerð, Fab Lab, smíðar og himingeiminn.
Snjalltæki
Skólasafn
Bókasafn skólans er opið á skólatíma. Nemendur geta fengið lánaðar bækur til að hafa í skólanum og heima.
Skólareglur
Skólareglur Grunnskólans á Suðureyri
Reglurnar voru endurskoðaðar á nemendaþingi í október 2025 og samþykktar á starfsmannafundi í maí 2026.
Umgengni: Við göngum vel og hljóðlega um skólann og berum virðingu fyrir eigum okkar og annarra.
Heilbrigði: Við hugum að heilsu okkar.
Kurteisi: Við berum virðingu fyrir skólaumhverfinu og komum fram við aðra eins og við viljum að aðrir komi fram við okkur.
Öryggi: Við stofnum okkur sjálfum eða öðrum ekki í hættu með orðum eða gjörðum.
Nánari skýringar:
Umgengni: Við berum virðingu fyrir eigum okkar og annarra, berum sjálf ábyrgð á okkar persónulegu hlutum/eigum s.s. farartækjum, fatnaði, símum, myndavélum, spjaldtölvum, fartölvum og förum ávallt eftir fyrirmælum kennara og annars starfsfólks. Við geymum yfirhafnir á snögum og skó í hillum
Göngum snyrtilega um allan skólann, skólastofur, matsal og salerni.
Heilbrigði: Við mætum tilbúin fyrir skóladaginn með því að vera búin að næra okkur vel. Við komum með hollt nesti. Öll notkun tóbaks, áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð í skólanum og á viðburðum sem tengjast honum.
Hreyfum okkur reglulega hvort sem er í íþróttastarfi eða göngutúr. Verum jákvæð því andleg heilsa skiptir máli.
Kurteisi: Við mætum stundvíslega, truflum ekki kennslustundir og sinnum náminu af áhuga. Við komum fram við aðra af kurteisi og virðingu
Verum jákvæð. Dæmum ekki aðra vegna útlits, þjóðernis eða kyns. Verum góðar fyrirmyndir fyrir aðra. Hrósum og hvetjum hvert annað.
Við tölum íslensku í tímum, á göngum og í frímínútum.
Öryggi: Við dveljum á skólalóðinni á skólatíma en notum ekki hjól, hlaupahjól, vespu eða önnur farartæki á skólalóðinni á skólatíma. Hjálmanotkun barna undir 15 ára aldri er skylda. Foreldrar bera ábyrgð á að því sé framfylgt. Skólinn ber ekki ábyrgð á tækjum eða öðrum verðmætum nemenda.
Við beitum ekki ógnunum, ögrunum, hótunum eða ljótum orðum. Andlegt og/eða líkamlegt ofbeldi er aldrei liðið þ.m.t. einelti. Barefli, vopn eða eldfæri má ekki koma með í skólann. Verum kurteis svo öðrum krökkum finnist þeir vera öruggir. Við höfum brunaæfingar reglulega yfir veturinn.
Skólareglur hanga á veggjum skólans.
Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar í skólanum. Kröfur um ástundun og árangur eru jafnmiklar og í öðrum greinum.
Valgreinar
Hafið í huga að valgreinar eru jafn mikilvægar og aðrar námsgreinar í skólanum. Kröfur um ástundun og árangur eru jafnmiklar og í öðrum greinum.
Námsvísar
Myndataka er óheimil í skólanum nema með sérstöku leyfi. Síminn á aldrei að trufla kennslustund og á að vera geymdur í skáp nemenda eða heima.
Símareglur
Markmið starfsmanna-stefnunnar er að sjá til þess að skólinn sé aðlaðandi vinnustaður þar sem þróast fagþekking, verkkunnátta og mikill vilji til þess að þjónusta nemendur og foreldra.




