vikuáætlun 17. - 21. nóvember
14.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkjar
17. – 21. nóv.
Byrjendalæsi: Í næstu viku er skáldavika. Skáld vikunnar er Andri Snær Magnason og mun allur skólinn vinna verkefni út frá hans verkum. Við ætlum að vinna með bókina Sagan af bláa hnettinum. Höfundurinn verður kynntur fyrir nemendum og auk þess verður unnið með lestur, lesskilning, stafsetningu, lýsingarorð, sögugerð og skrift.
Stærðfræði: Sproti 3a, rúmfræði, unnið niður bls. 91 í nemendabók, ásamt æfingahefti og aukabókum.
Einnig förum við í dans, leikfimi, sund og hringekju.
Heimanám: Lesa heima á hverjum degi. Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Á föstudaginn ætlar gangurinn okkar að vera svolítið ruglaður. Við ætlum að vera t.d. í öfugri peysu, sitthvorum sokkum, sokka í stað vettlinga eða eitthvað þvíumlíkt. Bara svona til að hafa gaman af.
Kveðja, Jón Heimir og Magnúsína








