vikuáætlun 15. - 19. september
11.09.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vikuáætlun 3. bekkjar
15. – 19. september
Byrjendalæsi: Vinnum með bókina Litlu Landnemarnir eftir Iðunni Steinsdóttur. Við munum vinna með samheiti, andheiti, samsett orð, lestur, ritun og orðaforða. Einnig kynnum við okkur hvernig víkingarnir námu land.
Stærðfræði: Sproti 3a niður bls.39 í nemendabók, ásamt æfingahefti og húrrahefti (hefti með lesdæmum).
Einnig förum við í dans, leikfimi, sund og hringekju.
Heimanám: Lesa heima á hverjum degi. Ef gleymist að skipta um lestrarbók í skólanum þá er bara að grípa bók úr hillunni heima og lesa úr henni þann daginn.
Á þriðjudaginn munum við hlaupa í Norræna skólahlaupinu. Á fimmtudaginn verða tónleikarnir Tónlist fyrir alla.
Kveðja,
Jón Heimir og Magnúsína








