vikan 27.-31. ágúst

24.08.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vinnuáætlun 5. bekkjar


27. -31.ágúst – 2012


 


 


Íslenska:     Örnefni við Skutulsfjörð, upprifjun á samnöfnum, sérnöfnum og samsettum orðum, lestur og skrift.


Stærðfræði:    Kynning á nýju námsefni, upprifjun .


Samfélagsfr.: Fjallganga, örnefni við Skutulsfjörð. Ljúka við ferðaleiðir sumarsins.


Náttúrufræði: Fjallganga, gróður og kynning á námsefni vetrarins.


Enska:               Orðaforði um skólastofuna.


 


Tilkynningar:



  • Miðvikudaginn 29. ágúst verður árleg haustganga árgangsins ef veður leyfir. Þá eiga nemendur að mæta í skólann kl. 8:30 á reiðhjólum og með hjálma. Hjólað verður að Seljalandi og hjólin geymd þar. Þeir sem búa í Holtahverfi mega hjóla beint að Seljalandi og vera mættir þar kl. 8:45. Þaðan göngum við inn  að tjaldstæði og borðum nesti.


Eftir nestið göngum við upp með Buná að gönguskíðaskálanum, þar ætlum við að kíkja í berjamó, og borða aftur áður en við förum heim, áætluð heimkoma er um kl. 13:00. Þeir sem eru í mataráskrift fá hádegisnesti frá mötuneytinu, en aðrir þurfa að hafa með sér tvöfalt nesti. Að sjálfsögðu þurfa allir að vera vel klæddir og góðir skór skipta  miklu máli.
Foreldrar eru að sjálfsögðu velkomnir með okkur og hvetjum við alla sem geta  að koma með.


 



  • Sund fellur niður þessa viku en í staðinn verður útivist, allur bekkurinn saman.


 



  • Leikfimin verður kennd utandyra allan september.


 



  • Í vetur verður heimanám. Fyrstu vikuna verður það aðeins lestur, ýmist í hljóði eða fyrir einhvern annan. Allan lestur á að skrá í skráningarheftið sem krakkarnir fá með sér heim.


 


Bestu kveðjur,


Hlíf og Valgerður.