kennsluáætlun í textílmennt
19.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Grunnskólinn á Ísafirði
Skólaárið 2014-2015
Kennsluáætlun í textilmennt.
Kennari: María Lárusdóttir
Kennslutími: Tveir tímar tvisvar sinnum í viku, í ca 11vikur.
Nemendahópur: 4. bekkur
Yfirmarkmið:
- Nemandinn
- Geti nýtt sér nokkrar vinnuaðferðir greinarinnar í einföldum útfærslum s.s. vélsaum, útsaum og prjón.
-
Námsgögn.: Prjónar, saumavél.
Kennslufræðileg markmið:
- Prjón: nemendur læra uppfitjun og að prjóna slétta lykkju.
- Prjóna buxur eða peysu á bangsann sem þeir sauma í saumavélinni. Vélsaumur: Nemendur læra að sauma beinan saum og víxlsaum. Nemendur gera vélsaumsæfingar í blöð með línum á. Þegar nemendur hafa náð nokkurri færni sauma þeir bangsa úr flísefni.
Skipulag:
Nemendum í textilmennt er skipt í þrjá hópa. Kennt er í handavinnustofu grunnskólans, tvær stundir samfellt, tvisvarí viku.
Námsmat:
Í hverjum tíma fer fram símat á vinnusemi, vandvirkni, framkomu og hegðun nemenda. Í lok annar er síðan gefin heildareinkunn.
Námsmat:
Einkunnagjöf á skalanum A,B,C,D,E








