Ýmis verkefni

27.11.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Það er fengist við ýmislegt í skólanum annað en kennslu skv. stundaskrá eins og flestir vita. Í gær var t.d. fyrirlestur fyrir unglingastigið á vegum SAFT (Samfélag, fjölskylda og tækni) um netnotkun, framkomu og öryggi á netinu.


8. bekkur var á sjálfsstyrkingarnámskeiði hjá Elísabetu Lorange í vikunni 8.-10. nóv. og var almenn ánægja með það. Elísabet er væntanleg aftur síðar í vetur. 


 


Nokkrir nemendur úr 8. bekk sáu um að lesa fallega upp fyrir 7. bekk í Hömrum á Degi íslenskrar tungu þegar Stóra upplestrarkeppnin var sett.


 


Margir nemendur 8. bekkjar hafa að undanförnu unnið hörðum höndum við undirbúning 1. des. hátíðarinnar þar sem leikritið Beðið eftir Go.com verður sett á svið í salnum. Fyrsta sýning er 28. nóv. og önnur á laugardaginn, 29. nóv.


 


Framundan er svo desember með öllu sínu jólastússi. 8. bekkur er þegar búinn að búa til og senda jólakort til Póllands, Portúgals, Rúmeníu og Kýpur vegna Comeniusarverkefnisins. Þau hafa einnig verið að vinna ýmis önnur verkefni í tengslum við það og allt er þetta einnig liður í að velja hverjir fari með í Póllandsferðina í maí. Gert er ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir í næstu viku.