Yfirlit haustfundar
26.09.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

12. september var haustfundur með foreldrum, þar sem umsjónarkennarar kynntu vetrarstarfið.
Farið var yfir ýmsa mikilvæga þætti í Skólahandbókinni (hægt er að sjá hana á heimasíðu skólans). Helstu þættir sem farið var í voru; framkoma og skýr mörk, smiðjan, skólasókn, heimanám, námsmat ofl.
Jóna Benediktsdóttir aðstoðarskólastjóri var með kynningu á hegðunarbílnum sem nemendum er kennt í vetur. Þetta er hluti af uppbyggingarstefnunni, þar sem nemendur læra að lesa í hegðun sína og æfast í að bregðast rétt við.
Nýtt námsmat kynnt. Samkvæmt nýrri aðalnámskrá þarf að vera búið að innleiða nýtt námsmat fyrir árið 2015. Þá á að gefa fyrir í öllum greinum í bókstöfum. Þá verður hver námsgrein tvískipt, þe. Td. Í Stærðfræði þá er gefið fyrir; Hæfni á námssviði (próf, símat) í einum bókstaf og síðan er líka gefið fyrir Lykilhæfni, sem við í Gí ætlum að þrískipta í (virðing-samhug-menntun).
Nýja lestrarkennslu aðferðin Byrjendalæsi kynnt lítillega .
Farið í mikilvægi samskipti heimili og skóla og betra er að hafa samband fyrr en sienna ef eitthvað kemur upp á varðandi barnið. Annað hvort hringja, senda tölvupóst eða koma til okkar.
Krakkar mega koma með afmælisboð í skólann ef öllum bekknum er boðið eða bara strákum eða bara stelpum. Passið vel upp á þegar boðið er í einhverjar uppákomur að engin leiðindi skapist.
Mentor: ef þið gleymið lykilorðinu þá er hægt að nálgast það á heimasíðunni á mentor, (hakið við gleymt lykilorð). Við komum til með að útbúa verkefnabók í stærðfræði sem verður hluti af símati og gildir hvert kaflapróf 10 % af Hæfni á námssviði.
Þrír tengiliðir gáfu kost á sér, þ.e. Guðný Stefanía (Stefán Freyr), Kolbrún (Rakel Ósk) og Anna Margrét (Arney Urður) og ætla þær að vera með sameiginlegar uppákomur í árganginum.
Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, nýráðinn skólaráðgjafi kynnti sig og starf sitt og er hún með aðstöðu í sama gangi og 3. bekkur. Hún er til viðtals á mánudögum frá kl. 8:00 - 15:00 og þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 8:00 - 13:00.
Við viljum þakka þeim sem komust á fundinn og vonumst við eftir góðu samstarfi í vetur. Eins og alltaf eruð þið velkomin að kíkja í heimsón hvenær sem er í skólann J








