Vorverkefni í 10. bekk

03.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Næsta vika  verður fremur óhefðbundin í skólanum hjá 10. bekk og nokkur röskun á stundaskrá.


 


Á mánudaginn kemur Þorgrímur Þráinsson rithöfundur og heldur fyrirlestur um markmiðssetningu o.fl. Þorgrímur hefur heimsótt skólann mörg undanfarin ár með þetta erindi og hefur ávallt verið gerður góður rómur að. Árganginum verður skipt í tvo hópa og verður annar í kennslu á meðan hinn er hjá Þorgrími og svo víxlað. Venjuleg kennsla eftir hádegi.


 


Á þriðjudaginn liggur leiðin í Haukadal á slóðir Gísla Súrssonar. Lagt af stað kl. 8:00 og komið til baka um hádegi. Kennt skv. stundaskrá eftir hádegi.


 


Á miðvikudaginn verður námskeið í skyndihjálp á vegum Rauða krossins.


 


Á fimmtudaginn verður kennt skv. stundaskrá en kl. 13:20 er okkur boðið í heimsókn í Menntaskólann á Ísafirði.


 


Á föstudaginn verður fyrirlestur frá MND-samtökunum á sal skólans kl. 9:45. Kennt skv. stundaskrá fyrir og eftir fyrirlesturinn.