Vorverkadagur
31.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Í dag tókum við aldeilis til hendinni og tíndum upp rusl í runnum við Pollgötu. Við fundum fullt af rusli en það er eitthvað "bogið" við að 9 ára krakkar séu að tína upp sígaretttustubba og glerbrot...
Eftir að hafa hafa snyrt vel til í runnunum við Samkaup fengum við óvæntan glaðning frá þeim fyrir þetta þjóðþrifaverk. Allir fengu gosdrykk og prinspóló, takk fyrir okkur :)
Síðan gengum við upp í Stórurð og lékum okkur þar dágóða stund og endum við Torfnes í leik á rampinum.








