Vorverkadagur 28. maí

27.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

2. bekkur fær það verkefni að hreinsa til á sjúkrahústúninu.

Nemendur mæta í skólann klukkan 8:00 með skólatöskur, undir dótið sem fer heim.
9:00 - Gengið upp á Sjúkrahústún með nesti í poka. Þar fáum við okkur hressingu áður en hreinsun hefst.
Ef vel gengur þá höfum við skipulagt leiki á túninu.
11:30 - Lagt af stað í grasagarð við Tónlistaskólann.
11:45 - Þar tekur Didda á móti hópnum og þau gróðursetja jurtir og grænmeti.
12:00 - 13:00 - Pylsupartý í boði mötuneytis og frímínútur á skólalóð.
13:00 - Frístund og skóla líkur klukkan 14:00 eins og venjulega.

Mikilvægt er að nemendur séu klæddir eftir veðri.
Kveðja Jón Heimir og Sigþrúður.