Vorskipulag 20.maí - 6.júní
17.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

20.-24.maí
- Á mánudaginn er annar í hvítasunnu og frí.
- Á þriðjudaginn verður stærðfræðipróf (kl. 8:00) Til prófs er Geisli 3 (tölfræði, rúmmál, almenn brot, tugabrot, líkur, flatarmyndir, talnafræði, hlutföll, mynstur og algebra, prósentur, hnitakerfi, reikniaðgerðir), nemendur fara heim að prófi loknu-krakkarnir þurfa að hafa vasareikni í prófinu.
- Á miðvikudaginn verður framsagnarpróf, nemendur fá textann og tímasetningu prófs á þriðjudaginn, farið heim að prófi loknu.
- Á fimmtudaginn verður próf í samfélagsfræði (kl. 8:00) (Evrópu, lesbók bls. 4-27 og vinnubók bls. 2-40). Kortabók verður leyfilegt hjálpargagn, nemendur fara heim að prófi loknu. Skila vinnubók
- Á föstudaginn verður kennt samkvæmt stundaskrá, en þá verður bókmenntapróf, til prófs er Gunnlaugs saga.
27.-31.maí
- Mánudagur, þriðjudagur og miðvikudagur eru skóladagar. Á þriðjudeginum verður enskupróf, til prófs: Action lesbók bls. 78-142, Action vinnubók bls.4. 15,18.27.37,51. S kila vinnubók.
- Fimmtudaginn 30. maí verður íþróttamót í Torfnesi.
- Föstudaginn 31.maí verður vorverkadagur í skólanum, þá förum við og fegrum umhverfið.
3.-6.júní
- Mánudaginn 3.maí verður hjólaferð og golf í Tungudal.
- Þriðjudaginn verður leikjadagur í Torfnesi.
- Miðvikudaginn verður starfsdagur kennara og frí í skólanum.
- Fimmtudaginn verður afhending einkunna í kennslustofum klukkan 10:00.
Kveðja, Erna og Magga








