Vorskipulag

18.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir


Áætlun 7. bekkjar



21. maí - 5. júní 2012
































































































Mánudagur 21. maí



Nemendur mæta kl.8:00.  Danssýning fyrir foreldra og aðra gesti kl. 8:40. 



Lokapróf í náttúrufræði. Prófað verður úr bókinni Maðurinn - Hugur og heilsa, bls. 32-98. Farið vel yfir vinnubókina. Skila bókum. Skóladegi lýkur að prófi loknu.



 



Þriðjudagur 22. maí



Prófdagur – Samfélagsfræði



Prófað verður úr bókinni Evrópa, bls. 4- 25. Farið vel yfir vinnubókina. Skila bókum.



 



Miðvikudagur 23. maí



Prófadagur – stærðfræði



Prófað verður úr námsefni vetrarins, Geisla 3.  Farið vel yfir kaflann Reikniaðgerðir bls. 118 og kannanir sem teknar hafa verið í vetur.  Skila bók.



 



Fimmtudagur 24. maí



Mæting kl.8:00 með skólatöskur. Tiltekt í stofunni.



Eftir það hittum við verðandi 1.bekkinga.



Taka með nesti. Skóladegi lýkur um kl.12:00



 



Föstudagur 25. maí



Háskóli ungafólksins. Skóladagur frá kl.8:00-13:30



 



Þriðjudagur 29. maí



Leikjadagur, mæting tilkynnt síðar. Taka með nesti.



 



Miðvikudagur 30. maí



Golfkennsla inn í Tungudal. Allir hittast á hjólum fyrir neðan Seljaland kl.8:30, munið eftir hjálmunum. Þeir sem eru í mötuneytinu fá hádegisnesti þaðan. Reiknum með að grilla. Skóladegi lýkur um hádegi.



 



Fimmtudagur 31. maí



Vorverkadagur. Mæting í grunnskólann kl.8:00. Skóladegi lýkur um hádegi. Koma með nesti.



 



Föstudagur 1. júní



Íþróttamót, mæting tilkynnt síðar.



 



Mánudagur 4. júní



Starfsdagur kennara – frí hjá nemendum.



 



Þriðjudagur 5. júní



Afhending einkunna í stofum bekkjanna kl.10:00.




 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



 



  Skólamötuneytið lokar 1.júní.



Þar sem þetta er síðasta áætlun okkar á þessu skólaári viljum við þakka fyrir gott samtarf í vetur.          Kveðja.   Hafdís og Hlíf