Vorpróf í stærðfræði
22.05.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Á fimmtudaginn verður próf í stærðfræði og verður prófað úr öllu efni vetrarins. Það sem krakkarnir þurfa að kunna skil á er:
- Reikniaðgerðirnar fjórar, þ.e. plús, mínus, margföldun og deiling. Margföldunartaflan þarf að vera klár.
- Tugabrot - leggja saman og draga frá tölur með einum og tveimur aukastöfum.
- Tölfræði - geta lesið úr einföldum myndritum s.s. súluritum og finna tíðasta gildi og miðgildi.
- Rúmfræði - kunna að reikna flatarmál og ummál á ferhyrningum og þríhyrningum
Þekkja hornasummu ferhyrninga (360°) og þríhyrninga (180°)
Þekkja nokkur form ferhyrninga s.s. ferninga, rétthyrninga og samsíðunga.
Þekkja jafnarma (tvær hliðar jafnlangar) og jafnhliða (allar hliðar jafnlangar) þríhyrninga. - Mælikvarðar - kíló, hekta, dega, gramm, desi, senti, milli - geta breytt mælieiningum t.d. úr metrum í centimetra
- Almenn brot - þekkja teljara og nefnara ( n efnari fyrir n eðan strik) og geta lagt saman og dregið frá samnefnd brot.








