Vorferð 10. bekkjar
24.05.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nemendur 10. bekkjar halda af stað í vorferð sína að morgni sunnudagsins 25. maí. Mæting kl hálfellefu við Alþýðuhúsið. Fararstjórar og förunautar verða umsjónarkennararnir Herdís og Monica, auk þeirra Jón Hálfdán íþróttakennari og þrír úr hópi foreldra; Gylfi pabbi Veturliða, Guðrún mamma Sigrúnar Lísu og Björn pabbi Baldurs.
Ferðinni er heitið að Steinsstöðum í Skagafirði þar sem ýmis ævintýri bíða. M.a. verður farið í litbolta, klettaklifur og flúðasiglingu. Þar að auki er ætlunin að heimsækja hina frægu sundlaug á Hofsósi, borða pizzur á Sauðárkróki, sulla í lauginni á Steinsstöðum og leika sér í fótbolta, taka lagið og sprella alls konar eftir því sem hugmyndaflugið leyfir (og þolmörk fararstjóranna).
Heimferðin er fyrirhuguð á miðvikudaginn og gert ráð fyrir að koma heim á Ísafjörð milli kl. 17 og 18.








