Vordagar
27.05.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Nú fer að sjá fyrir endann á þessu skólaári hjá nemendunum okkar. Þegar prófum er lokið taka við hin ýmsu vorverk.
Á fimmtudaginn verður haldið hið árlega frjálsíþróttamót skólans á Torfnesvelli.
Þá er mæting kl. 10:00 og mótinu lýkur um hádegi. Mötuneytið verður opið.
Íþróttakennsla er hluti af námskrá grunnskólans og er sjálfsagt að hvetja alla til að hreyfa sig meira. Á frjálsíþróttamóti gefst gott tækifæri til að kynnast íþróttagreinum sem margir hafa ekki áður prófað. Síðast en ekki síst er þetta tækifæri til að skemmta sér vel úti í vorblíðunni (sem er á leiðinni!) í góðum félagsskap.
Á föstudaginn verður vorverkadagur í skólanum. Þá fara nemendur og starfsmenn út um víðan völl og fegra bæinn með ýmsu móti í samstarfi við bæjaryfirvöld. Mæting klukkan 8 og vinnu lýkur um hádegi. Mötuneytið verður opið.
Markmiðið með þessu verkefni er að efla samfélags- og umhverfisvitund nemenda, opna augu þeirra fyrir því sem betur má fara í umhverfinu og styrkja tilfinningu þeirra fyrir því að við berum öll sameiginlega ábyrgð á því hvernig bærinn okkar lítur út.
Á mánudag og þriðjudag verða þemadagar og unnið að náttúrufræðiverkefnum. Þá daga þurfa allir að koma á hjóli - með hjálm og vel búnir, því að hjólað verður á milli stöðva í nágrenninu og gerðar hinar ýmsu náttúrufræðirannsóknir.
Umhverfi Ísafjarðar er auðvitað rétti staðurinn til að gera náttúrufræðirannsóknir, ekki síst á þessum árstíma þegar allt er að vakna til lífsins á ný eftir veturinn.
Mæting kl. 8:00 og allir þurfa að hafa með sér nesti fyrir daginn. Mötuneytið verður lokað.
Nokkuð hefur borið á því að sumir telji þessa síðustu daga á einhvern hátt minna virði en aðra skóladaga en við viljum ítreka að þetta eru einmitt mjög dýrmætir dagar og nám felst ekki bara í því að sitja inni í kennslustofu. Það er að sjálfsögðu mætingaskylda enda mikilvægt nám sem þarna fer fram.








