Vísindamenn

15.01.2014 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Við höfum uppgötvað áhugasama vísindamenn í 1. bekk og stefnum á að viðhalda þessum áhuga eins og tækifæri gefa til.


Í dag gerðum við tilraun með vatn, þ.e. hvaða hlutir fljóta og hverjir sökkva. Nemendur völdu sér 4 hluti, og giskuðu á hvað myndi gerast: sökkva eða fljóta. Síðan var hlutunum skellt í stóran bala með vatni og niðurstöður skráðar. 


Það var nú ekki leiðinlegt að fá að sulla aðeins í lokin :)