Vinnudagur í Þróunarsetri Vestfjarða

03.03.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vinnudagurinn í Þróunarsetrinu gekk afskaplega vel og var ekki hægt að sjá annað en að krakkarnir væru ánægðir með hann. Hver hópur vann að sinni viðskiptaáætlun undir leiðsögn Jóns Páls Hreinssonar og Shirans Þórissonar, starfsmanna AtVest. Einnig byrjuðu krakkarnir á kynningunni sinni þeir ætla að nota á föstudaginn n.k. þegar vöruhugmyndirnar verða kynntar fyrir dómnefnd.