Vinnuáætlun vikuna 3.-7. september

31.08.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vinnuáætlun 5. bekkjar


3. -7.september – 2012


 


 


Íslenska: Þetta er málið verkefnabók verkefni 1-5 og lesbók. Óskirnar Tvær bls. 7-9. Upprifjun á sérnöfnum, samnöfnum og samsettum orðum.Lestur og skrift.


Stærðfræði: Stika 1a nemendabók bls.6-8, Heilar tölur. Æfingahefti bls. 14. Einnig aukabækur


Samfélagsfr.: Land og líf lesbók bls. 6-8 og vinnubók bls.4-5. Eyja í mótun. Örnefni við Skutulsfjörð.


Náttúrufræði: Auðvitað 1. Ljós, speglar og linsur bls. 8-10


Enska: Speak out bls.2-3  Work out  bls.3


Lífsleikni: Skólasáttmáli og skýrmörk


 


Tilkynningar:



  • Föstudaginn 7.september er kennaraþing og mun sá dagur vera starfsdagur kennara og því öll kennsla falla niður.

  • Sund fellur niður þessa viku vegna viðhalds á sundlaug en í staðinn verður útivist, allur bekkurinn saman.

  • Leikfimin verður kennd utandyra allan september.

  • Heimanám kemur heim þessa vikuna og er ætlunin að nemendur fái heimanám á föstudag og skili því til umsjónarkennara í síðasta lagi á fimmtudag vikunni á eftir.

  • Þessa vikuna byrja nemendur að gera sér vinnuáætlanir.Fyrirkomulag þeirra verður svipað og var í fyrra vetur.



Heimavinna:


Íslenska: Læra stafrófsvísu Þórarins Eldjárns. 10 örnefni við Skutulsfjörð.


Stærðfræði:10 samlagningardæmi sjá bók.


Lestur alla daga



 


Bestu kveðjur,


Hlíf og Valgerður.