Vinnuáætlun vikuna 21.-25. janúar
18.01.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vinnuáætlun 5. bekkjar
21.-25. janúar 2013
Íslenska: Málrækt bls. 22-23- 28-29 nafnorð. Skrift og dagbók.
Þetta er málið bls. 97-102, Fimm fingur, fimm synir eða Sagan af sögumanninum Addad
Stærðfræði : Stika 1a nemendabók eða æfingabók. Tugabrot unnið áfram 4-6 síður.
Samfélagsfr: Trúarbrögðin okkar. Kristni og Islamstrú.
Náttúrufræði: Hópverkefni um dýr.
Enska: Days , months and seasons.
Lífsleikni: Samskipti.
Málsháttur vikunnar: Sannleikurinn er sagna bestur.
Tilkynningar :
- Í næstu viku verður fatasund hjá 5. bekk en það er hluti af námskrá hjá þeim. Krakkarnir eru beðnir um að koma ekki í fötum með hnökrum eða öðru sem gæti farið í hreinsibúnað laugarinnar.
- Ákveðið hefur verið að bjóða nemendum 5. bekkjar í sérstakt tónlistarverkefni í samvinnu við tónlistarskólann. Nemendur kom heim með kynningarblað fyrir foreldra.
- Vorönn hefst mánudaginn 21. janúar. Nemendur fá vitnisburðarblöð heim með sér föstudaginn 1.febrúar. Einkunnir fara inn á Mentor um leið og gengið hefur verið frá þeim.
Heimavinna:
Íslenska: Fallbeyging
Stærðfræði: Tugabrot
Lestur alla daga.
Bestu kveðjur, Hlíf og Valgerður








