Vinnuáætlun 3-7. desember
29.11.2012 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vinnuáætlun 5. bekkjar
3.-7.desember 2012
Íslenska : Þetta er málið, lesbók, goðafræði bls. 30-33 Úlfurinn bundinn. Málrækt niður blaðsíðu 13. Dagbók. Skrift.
Stærðfræði : Stika 1a nemendabók unnið áfram 4-6 bls.
Tölfræði og tugabrot. Könnun eftir bls. 57.
Samfélagsfr. : Land og líf Lokið við bækurnar. Próf úr vinnubók á fimmtudaginn. Skila á vinnubók í síðasta lagi mánudag 10. des. Verkefni sem metin verða til einkunnar eru: Ferðaleiðir sumarsins 3%, Örnafnakort 3%, Fjársjóðseyja og fjall 4%, próf 20%, vinnubók 70%
Náttúrufræði: Auðvitað. Himingeimurinn.
Enska: The alphabet áfram.
Lífsleikni: Samvinna og tilitsemi.
Tilkynningar : Opinn dagur er í skólanum mánudaginn 3.desember. Þá eru allir velkomnir í heimsókn og að fylgjast með kennslustund.
Nú fer að líða að árlegu jólaföndri og væri gott að koma með mjólkurfernur ofl. sem við gætum notað í sameiginlegt föndur t.d gjafa eða jólapappír, pakkabönd og gamalt skraut. Margir þurfa að endurnýja lím og ritföng, einnig þarf að athuga hvort skæri séu tiltæk.
Það þarf líka að rifja upp jólatextana í söngbókinni.
Heimavinna:
Stærðfræði: Tölfræði
Íslenska: Sérnöfn og samnöfn.
Lestur alla daga.
Bestu kveðjur, Hlíf og Valgerður








