Vinnuáætlun 26. maí - 3. júní

22.05.2015 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

 


Nú fara í hönd síðustu dagar skólaársins og er mæting alla daga kl. 8:00, nema í framsagnarprófið, þá fær hver og einn sína tímasetningu.


Við minnum alla á að skila valblaði fyrir næsta vetur, helst á þriðjudaginn. Einnig þurfa allir að skila bókum sem merktar eru skólanum.


 



  •  25. maí - annar í hvítasunnu - frí.


  • 26. maí - prófadagur: stærðfræði (nemendur fara heim að prófi loknu)

    • Það sem nemendur þurfa að vera klárir á er:




tugabrot, almenn brot, flatarmál, ummál, þríhyrningar (horn og gerð), mælieiningar (km., hm., dam., m., dm., cm., mm.), lestur myndrita, flutningar (hliðrun, speglun, snúningur) reikniaðgerðirnar fjórar; samlagning, frádráttur, margföldun og deiling – og uppsetning á dæmum.



  • 27. maí - prófadagur: ísl./framsögn (nemendur fara heim að prófi loknu). Nemendur fá prófin með sér heim deginum áður, ásamt tímasetningu hvers og eins.


  • 28. maí –  heimsókn í Orkubú Vestfjarða í Mjósundi/útivist. Nemendur mæta í skóla kl. 8:00 með nesti í bakpoka og klæddir til útivistar. Skóla lýkur um hádegið.


 



  • 29. maí – vorverkadagur. Nemendur mæta í skóla kl. 8:00 með nesti í bakpoka og klæddir til útivistar. Mötuneytið kveður í vetur og býður upp á grillaðar pylsur í hádeginu og skóla lýkur að því loknu.


 


 



  • 1.júní – Frágangur í skólastofu og útivist. Nemendur mæta í skóla kl. 8:00 með nesti í bakpoka og klæddir til útivistar. Skóla lýkur um hádegið.


 



  • 2.júní – Heimsókn í Náttúrugripasafnið í Bolungarvík. Nemendur mæta kl. 8:00 í skólann með nesti í bakpoka og klæddir til útivistar. Rúta heim um hádegið.


 


 



  • 3.júní – leikjadagur á Torfnesi, nemendur mæta í bekkjarstofur kl. 8:00. Skóla lýkur um hádegið.


 


Kærar þakkir fyrir samstarfið í vetur,


Auður og Helga