Vinnuáætlun 16.-20. desember
13.12.2013 | Guðný Stefanía Stefánsdóttir

Vinnuáætlun 6. bekkjar
16.- 20. desember 2013
Við höldum áfram að æfa jólalögin. Textar sem allir eiga að læra utan að eru: Heims um ból, Hin fyrstu jól, Nóttin var sú ágæt ein og Bjart er yfir Betlehem.
Sú hefð hefur skapast í skólanum að á litlu jólunum skiptast nemendur á pökkum og viljum við halda því áfram. Við áætlum að andvirði hvers pakka fari ekki yfir 500 kr. Pakkana þarf að koma með í skólann í síðasta lag á miðvikudag.
Það verður enginn sérstakur skreytingadagur hjá okkur núna eins og verið hefur undanfarin ár en kennsla samkvæmt stundaskrá fram að föstudegi. Vinnan þessa viku mun þó einkennast af undirbúningi jólanna s.s. vinnu við jólabók, föndri og söng og öðru því sem við erum vön að gera í skólanum síðustu dagana fyrir jólin.
Föstudagur: Litlu jólin, skólatími frá kl. 9:00 – 12:00. Strætó í skóla kl. 8:40 og heim kl. 12:15.
Ætlast er til þess að börnin komi í betri fötunum á litlu jólin. Í nesti má hafa smákökur og fernudrykk eða gos.
Á nýju ári hefst skóli aftur mánudaginn 7. janúar samkvæmt stundatöflu.
Jólakveðja ,
Begga og Hlíf








